Full Magnolia Eau De Parfum
Ferskleiki. Unisex. Vegan
Full Magnolia Eau de Parfum er ferskur og léttur ilmur úr Full Flowers línunni okkar sem hentar öllum kynjum. Þessir ilmir eru marglaga, enda samsettir úr blómum, laufum og stilkum blómanna sem þeir eru kenndir við, ásamt ýmiskonar öðru góðgæti sem gefur hverjum ilmi sinn einstaka blæ. Þessi ilmur er samsettur úr blómi, laufum og stilkum magnolíutrésins, blómlegur, mjúkur en þó frísklegur ilmur. Flaskan inniheldur að lágmarki 20% endurunnið gler og tappinn er úr viði og korki.
- Endingargóður Eau de Perfume ilmur
- Ferskur blómailmur
- Vegan
Skráðu þig í klúbbinn og fáðu 15% afslátt
Ókeypis heimsending fyrir pantanir yfir 10.000kr.
Aldrei prófað á dýrum
Skilafrestur á jólagjöfum er framlengdur til áramóta.
Innihaldsefni
Aqua/Water/Eau, Sodium Laureth Sulfate, Glycerin, Decyl Glucoside, Cocamidopropyl Betaine, Coco- Betaine, Sodium Chloride, Parfum/Fragrance, Citric Acid, Sodium Benzoate, Sodium Gluconate, Linalool, Limonene, Aloe Barbadensis Leaf Juice Powder, Mangifera Indica Fruit Extract/Mangifera Indica (Mango) Fruit Extract, Denatonium Benzoate, CI 19140/Yellow 5, CI 17200/Red 33.
Hvað gerir varan fyrir þig?
Full Magnolia Eau de Parfum er geislandi viðbót við Full Flowers línuna okkar og klassík í mótun.
Ilmvatnið er hannað fyrir öll sem tengja við það og fangar magnolíublómið í allri sinni dýrð, í björtum, ávaxtaríkum blómailmi.
Þessi nýja unisex lína er innblásin af blóminu í heild sinni, bæði karl- og kvenhlutum þess. Í ilmunum mætast mjúk krónublöð, græn lauf, viðarkenndir stilkar, safaríkir ávextir og sæt kvoða, í ilmvötnum sem hjálpa þér að fagna öllum þínum einstöku hliðum og tilfinningum.
Í hjarta ilmsins er dýrmæt magnólíuilmkjarnaolía, unnin úr handtíndum magnólíublómum í suðurhéruðum Kína. Glæsilegur ilmurinn endurspeglar ferskleika og fegurð blómanna. Grænn tónn af rabarbara stendur fyrir ilmandi laufin og mjúkur, hvítur viður vísar til fíngerðra greinanna sem sólin vermir. Eftir því sem líður á daginn þróast ilmurinn og afhjúpar hverja einstöku hlið sína, eina af annarri.
91% innihaldsefnanna eru af náttúrulegum uppruna og ilmvatnið er vottað af The Vegan Society.
Flaskan er úr endurunnu gleri og tappinn, sem er hannaður með sjálfbærni í huga, er úr endurnýjanlegum viði og korki. Þegar síðustu droparnir eru búnir má endurvinna flöskuna aftur.*
- Endingargott Eau de Parfum
- Bjartur, ávaxtaríkur og blómlegur
- Tónar af grænum rabarbara, magnólíublómi og hvítum viði
- Unnið úr náttúrulegri magnólíuilmkjarnaolíu úr handtíndum magnólíublómum frá suðurhéruðum Kína
- 91% innihaldsefna af náttúrulegum uppruna
- Vottað af The Vegan Society
*Þar sem aðstæður til endurvinnslu leyfa. Á ekki við um dæluna.
Svona notarðu vöruna
Notaðu sparlega eða slepptu þér alveg. Úðaðu þessum ferska ilmi á hálsinn og púlspunktana eins oft og þú vilt. Ef þú heillast af þessum blómailmi, prófaðu þá hina ilmina í Full Flowers línunni.
Sendingarmáti
Ókeypis heimsending ef pantað er fyrir yfir 10.000kr.
Hægt er að fá heimsent með Dropp eða Íslandspósti. Ef pantað er fyrir kl 14:00, gerum við okkar besta til að koma pöntunni út samdægurs.
Einnig er hægt að sækja í verslunum okkar í Kringlu og Smáralind.
30-daga skilafrestur - sendu okkur vöruna til baka eða komdu við hjá okkur.
- Viðskiptavinir keyptu líka
- Nýlega skoðað