This site has limited support for your browser. We recommend switching to Edge, Chrome, Safari, or Firefox.

Frí heimsending af öllum pöntunum yfir 10.000kr

The Body Shop í 50 ár

Skráðu þig á póstlistann

Karfan þín 0

Til hamingju! Þú færð ókeypis heimsendingu. Bættu 10.000 kr í körfuna til að fá ókeypis heimsendingu.
Við eigum því miður ekki nógu mörg eintök af þessari vöru.

Pair with
Samtals Ókeypis
Skoða körfu
Sendingarkostnaður er reiknaður í næsta skrefi.

The Body Shop í 50 ár

The Body Shop í gegnum tíðina

The Body Shop er brautryðjandi. Þar sem óbilandi uppreisnarandi, siðferðileg gildi, náttúruleg innihaldsefni og áhrifaríkar vörur hvetja fólk til að sjá eigið virði, standa með sjálfu sér og viðurkenna gildi sitt, bæði í líkama og huga.

Í tilefni af 50 ára afmælinu okkar höfum við verið að skoða gömul skjöl og myndefni úr safninu okkar. Okkur hefur ekki tekist að finna upprunalega ljósmyndarann eða rétthafa þessara mynda. Ef það ert þú, endilega hafðu samband við okkur á support-gb.thebodyshop.com og við leysum það fljótt og vel.

1994-1996

1994

Mannréttindi

Óhrædd. Ögrandi. Viðeigandi. Fyndin. Háðsádeila getur verið beittasta vopnið þegar kemur að því að grafa undan valdi.

Við tókum slaginn á tveimur vígstöðvum: eyðileggjandi og mannskæðu valdi karlrembunnar (sem því miður er enn útbreitt í dag), og dýratilraunum.

Við gerðum gys að hroka hins fyrrnefnda til að varpa ljósi á grimmd hins síðarnefnda.

En hvaða mun getur lítið og hófsamt kvenlægt snyrtivörumerki eiginlega gert?

 

1995

Björgum hvölunum

Stór málefni, fallega unnin. Þegar við öll tökum frá móður náttúru, þá ber okkur líka að gefa eitthvað til baka. Að hjálpa til við að vernda umhverfið okkar og allt sem í því lifir — stórt sem smátt — hefur alltaf verið málstaður sem vert er að berjast fyrir.

Þegar hún getur ekki barist til baka, gerum við það. Hvar sem við getum. Með því að láta í okkur heyra, valda usla og taka höggunum.

 

1996

Gegn dýratilraunum

Stærsti sigur The Body Shop? Við vörpuðum ljósi á dýratilraunir, stóðum gegn þeim og hjálpuðum til við að breyta lögunum um þær í Bretlandi. Þau lög standa enn í dag.

Á meðan aðrir voru sáttir við að prófa á dýrum, vorum við reið og mótmæltum.

Stundum skiptir það virkilega máli að vera uppreisnargjarn. Og svo fylgja aðrir á eftir.

 

1997-1999

1997

Fake It

Við snerum við augnaráði fegurðariðnaðarins með dirfsku og stríðni, til að vekja athygli og kalla fram bros.

Stundum þarf uppreisn ekki að vera erfið. Hún getur líka verið skemmtileg.

Og þegar hún er vel gerð getur hún líka selt frábærar vörur.

 

1998

Ruby Doll

Þegar „grannt“ var hent út.

Við ögruðum eitraðri, skaðlegri og niðurnjörvaðri líkamsímynd sem fegurðariðnaðurinn hafði gert eðlilega.

Með hugrekki. Með beittri rödd. Með okkar eigin einstöku, fallegu dirfsku.

Kynntu þér „Ruby“: uppreisnartákni fyrir allar aldir.

Og þegar það virðist sem heimurinn sé að færast afturábak, þá er þessi barátta jafn mikilvæg og áður.

 

1999

Mæðradagurinn

Sykursætar klisjur um mæðradaginn? Við höfðum engan áhuga á því. Stórir, grófir menn í stórum stígvélum elska mömmur sínar líka.

Einnig þessir stóru mjúku menn.

 

2003-2008

2003

Valentínusardagurinn

Stundum kemst maður langt með smá glensi. Fágun má eiga sig ... þegar bresk hógværð fékk spark í rassinn.

 

2003

Stöðvum heimilisofbeldi

Ósagðar og erfiðar baráttur eru oft þær sem mest er vert að taka. Sannleikurinn krefst hugrekkis og þess að geta tekist á við það sem er óþægilegt, og við höfum lengi farið þangað sem aðrir þorðu ekki.

Að standa með þolendum og benda á gerendur ofbeldis í samfélagi sem gerir lítið úr fórnarlömbum krefst annars konar dirfsku og hugrekkis.

Og tölfræðin sýnir að það er enn mikið verk eftir að vinna.

 

2008

HIV

Við tókumst beint á við eina stærstu alþjóðlegu mannúðarkreppu síðari hluta tuttugustu aldar, með ástríðu, skýrri afstöðu og dirfsku, á tíma þegar fáir töluðu upphátt og þeir hópar sem urðu verst úti og stóðu á jaðrinum höfðu ekki þá rödd sem þeir þurftu.

Þegar vörumerki og málstaður renna saman geta stórir hlutir gerst og raunverulegar breytingar átt sér stað.

Og nú þegar HIV er aftur á uppleið er boðskapurinn enn jafn mikilvægur.

 

2010

2010

Community Fair Trade

Byltingarkennda Community Fair Trade áætlunin okkar hófst fyrir meira en 35 árum síðan með það eina markmið að stunda sanngjörn viðskipti — ekki hjálparstarf — við samfélagsbundin samtök sem byggja á kynslóðabundinni þekkingu til að framleiða hágæða hráefni og efni í vörurnar okkar. Í gegnum þetta samstarf við einstaka handverksfólk, bændur, framleiðendur og iðnaðarfólk um allan heim — sem er byggt á langvarandi trausti og virðingu — getum við saman tekist á við brýnustu samfélags- og umhverfisáskoranirnar.

Community Fair Trade hefur breytt því hvernig við vinnum, og það hefur breytt lífi þúsunda sem tengjast því.