Sleep Relaxing Massage Oil
Með lavender og vetiver ilmkjarnaolíum. Hentar öllum húðgerðum. Vegan
Róandi nuddolía með imkjarnaolíublöndu sem hjálpar þér að ná slökun og djúpum svefni. Inniheldur lavender ilmkjarnaolíu frá Haute Provence í Frakklandi, Vetiver ilmkjarnaolíu frá Madagaskar og lífræna Community Fair Trade ólívuolíu frá Ítalíu.
- Róar hugann og hjálpar þér að ná slökun
- Fullkomið dekur
- Hentar fyrir viðkvæma húð
- Vegan
Skráðu þig í klúbbinn og fáðu 15% afslátt
Ókeypis heimsending fyrir pantanir yfir 10.000kr.
Aldrei prófað á dýrum
Skilafrestur á jólagjöfum er framlengdur til áramóta.
Community Fair Trade lavender ilmkjarnaolía
Lavender ilmkjarnaolían okkar kemur af hásléttum Haute-Provence í Frakklandi. Hún er rómuð fyrir slakandi áhrif sem hjálpa þér að ná góðum svefni.

Community Fair Trade vetiver ilmkjarnaolía
Vetiver ilmkjarnaolían okkar kemur frá Madagaskar, þar sem ræktunin var tekin upp til að auka fjölbreytni í landbúnaði á svæðinu. Ilmurinn er róandi og jarðbundinn.

Lífræn Community Fair Trade ólífuolía
Þetta fljótandi gull hefur mýkt húðina í þúsundir ára. Okkar kemur úr ólífulundum á Suður-Ítalíu.

Hvað gerir varan fyrir þig?
Slakaðu mjúklega á líkama og huga með Sleep Relaxing Massage Oil.
Olía sem hvorki fitar né klístrast, með róandi jurtakenndum og blómlegum ilmi sem hjálpar þér að slökkva á deginum fyrir svefninn. Þú vaknar svo með silkimjúka húð. Og hún smitast ekki í uppáhalds náttfötin eða rúmfötin. Getur það orðið betra?
Olían er vegan og með 99% innihaldsefna af náttúrulegum uppruna, þar á meðal 100% náttúrulega og lífbrjótanlega* lavender ilmkjarnaolíu frá Frakklandi, 100% náttúrulega og lífbrjótanlega* vetiver ilmkjarnaolíu frá Madagaskar, lífræna Community Fair Trade ólífuolíu frá Ítalíu og Community Fair Trade sesamolíu frá Níkaragva.
Hún kemur í endurvinnanlegri** flösku sem inniheldur endurunnið gler, með álloki, svo þú getur notið bæði góðs nætursvefns og hugsað vel um jörðina okkar.
Nuddaðu olíunni á þig hvenær sem líkami og hugur þurfa að búa sig undir svefninn. Og ef þú færð einhvern annan til að nudda þig, enn betra! Góð afsökun til að kúra aðeins nær.
*Lífbrjótanleg að fullu samkvæmt OECD 301 viðmiðum fyrir kolefnistengd efni.
**Þar sem aðstæður til endurvinnslu leyfa.
- Rakagefandi nuddolía
- Hentar öllum húðgerðum
- Hjálpar þér að slökkva á deginum fyrir svefninn
- Þú vaknar með silkimjúka húð
- 99% innihaldsefna af náttúrulegum uppruna
- Vottað af The Vegan Society
Svona notarðu vöruna
- Byrjaðu á að hreinsa húðina og gefa henni raka með Sleep Relaxing Hair & Body Wash og Sleep Balmy Body Cream.
- Nuddaðu olíunni svo mjúklega í hringi á þau svæði líkamans sem þurfa mest á því að halda.
- Leyfðu olíunni að ganga inn í húðina áður en þú ferð í þægilegustu náttfötin.
Sendingarmáti
Ókeypis heimsending ef pantað er fyrir yfir 10.000kr.
Hægt er að fá heimsent með Dropp eða Íslandspósti. Ef pantað er fyrir kl 14:00, gerum við okkar besta til að koma pöntunni út samdægurs.
Einnig er hægt að sækja í verslunum okkar í Kringlu og Smáralind.
30-daga skilafrestur - sendu okkur vöruna til baka eða komdu við hjá okkur.
- Viðskiptavinir keyptu líka
- Nýlega skoðað