Wild Jasmine Body Cream
Mjúkur blómailmur. Hentar öllum húðgerðum. Vegan
Létt en mýkjandi og nærandi húðnæring með mjúkum en frísklegum ilmi af jasmínu, fjólum og írisblómi. Inniheldur handunndið Community Fair Trade shea butter frá Ghana
- Nærir húðina og mýkir
- Gengur hratt inn í húðina
- Frísklegur blómailmur
- Endurvinnanlegar* umbúðir: lok úr áli og dós úr 100% endurunnu plasti, að hluta til Community Fair Trade plasti frá Indlandi
- Vegan
*Þar sem aðstæður til endurvinnslu leyfa.
Skráðu þig í klúbbinn og fáðu 15% afslátt
Ókeypis heimsending fyrir pantanir yfir 10.000kr.
Aldrei prófað á dýrum
Skilafrestur á jólagjöfum er framlengdur til áramóta.
Community Fair Trade sheasmjör
Frá samstarfsaðilum okkar í Ghana. Sheasmjör er ríkt af fitu og með þétta, mjúka áferð sem gefur húðinni djúpan og góðan raka.

Hvað gerir varan fyrir þig?
Leystu ævintýragjarna og óttalausa andann úr læðingi með Wild Jasmine Body Cream, hluta af Choice Fragrance Collection.
Taktu vel af kreminu, berðu það á þig og húðin verður mýkri og sléttari. Wild Jasmine er nýtt og ferskt útlit á söluhæstu Indian Night Jasmine línunni okkar.
Þetta vegan rakakrem er úr 96% innihaldsefnum af náttúrulegum uppruna, meðal annars handunnu Community Fair Trade sheasmjöri frá Ghana, og leyfir persónuleikanum að leika lausum hala með blómlegum, munúðarfullum og rjómakenndum tónum af indverskri jasmínu, fjólulaufi og hvítu írisblómi.
Dósin er úr 100% endurunnu plasti, þar á meðal Community Fair Trade endurunnu plasti sem safnað er á götum Bengaluru á Indlandi.
- Rakakrem fyrir líkamann
- Hentar öllum húðgerðum
- Gerir húðina mýkri og sléttari
- Rjómakenndur blómailmur
- Tónar af indverskri jasmínu, fjólulaufi og hvítu írisblómi
- Hvorki klístrað né fitukennt
- 96% innihaldsefna af náttúrulegum uppruna
- Vottað af The Vegan Society
Svona notarðu vöruna
- Taktu smá af kreminu.
- Berðu það á húðina, sparlega eða ríkulega, eftir því sem þér hentar.
- Gefðu sérstaklega þurrum svæðum eins og fótum, höndum og olnbogum smá auka athygli.
- Leyfðu kreminu að ganga inn í húðina í smástund áður en þú klæðir þig.
- Ef þú elskar ilminn skaltu byrja á að þvo þér með Wild Jasmine Shower Gel og bæta svo við Wild Jasmine Eau de Toilette og Wild Jasmine Body Mist eftir kremið.
Sendingarmáti
Ókeypis heimsending ef pantað er fyrir yfir 10.000kr.
Hægt er að fá heimsent með Dropp eða Íslandspósti. Ef pantað er fyrir kl 14:00, gerum við okkar besta til að koma pöntunni út samdægurs.
Einnig er hægt að sækja í verslunum okkar í Kringlu og Smáralind.
30-daga skilafrestur - sendu okkur vöruna til baka eða komdu við hjá okkur.
- Viðskiptavinir keyptu líka
- Nýlega skoðað