Strawberry Shower Gel
Sápulaust sturtugel með ávaxtaríkum og frísklegum ilmi af jarðarberjum enda inniheldur það ekta jarðarberjasafa, ásamt lífrænu Community Fair Trade aloe vera frá Mexíkó. Ilmurinn ber með sér örlitla vanillu- og ananastóna, ótrúlega ferskt og sumarlegt auk þess sem það freyðir mjög vel. Flaskan sjálf, sem er endurvinnanleg*, er framleidd úr 100% endurunnu plasti sem kemur að hluta til úr Community Fair Trade plastverkefninu okkar í Bengaluru á Indlandi.
- Sturtugel
- Hreinsar og mýkir húðina
- Sápulaust en freyðir vel
- Kaldpressuð olía úr jarðarberjafræjum
- Vegan
*Þar sem aðstæður til endurvinnslu leyfa.
Skráðu þig í klúbbinn og fáðu 15% afslátt
Ókeypis heimsending fyrir pantanir yfir 10.000kr.
Aldrei prófað á dýrum
Skilafrestur á jólagjöfum er framlengdur til áramóta.
Jarðarberjafræolía og jarðarberjasafi
Við nýtum það besta úr jarðarberjunum í olíu og seyði fyrir vörurnar okkar.

Lífrænt Community Fair Trade aloe vera
Handtínt í Mexíkó. Aloe vera róar húðina og gefur henni raka og hjálpar henni að jafna sig þegar kuldinn fer að segja til sín.

Hvað gerir varan fyrir þig?
Strawberry Shower Gel freyðir vel og skilur líkamann eftir ferskan og tandurhreinan.
Nú vottað af The Vegan Society og gert úr 92% innihaldsefna af náttúrulegum uppruna, þar á meðal jarðarberjasafa og lífrænu Community Fair Trade aloe vera frá Mexíkó. Sturtugelið skilur húðina eftir mjúka. Ilmurinn er með tónum af jarðarberjum, vanillu og ananas. Hann flytur þig í enskan garð á hlýjum sólardegi og þú ilmar eins og villijarðarber, ferskt og frísklegt en samt sætt.
Það hentar öllum húðgerðum og freyðir einstaklega vel: létt gelið breytist í ríkulega, loftkennda froðu. Flaskan er endurvinnanleg og gerð úr 100% endurunnu plasti, meðal annars Community Fair Trade plasti sem safnað er á götum Bengaluru á Indlandi. Tappann má líka endurvinna. Þannig hugsarðu um jörðina í hvert sinn sem þú dekrar við líkamann.
- Sturtugel
- Hentar öllum húðgerðum
- Húðin verður mjúk, hrein og endurnærð
- Sætt og frískandi
- 92% innihaldsefna af náttúrulegum uppruna
- Nú vottað af The Vegan Society
- Prófað af húðlæknum
Svona notarðu vöruna
Nuddaðu yfir blautan líkamann þar til freyðir vel og skolaðu svo af.
Sendingarmáti
Ókeypis heimsending ef pantað er fyrir yfir 10.000kr.
Hægt er að fá heimsent með Dropp eða Íslandspósti. Ef pantað er fyrir kl 14:00, gerum við okkar besta til að koma pöntunni út samdægurs.
Einnig er hægt að sækja í verslunum okkar í Kringlu og Smáralind.
30-daga skilafrestur - sendu okkur vöruna til baka eða komdu við hjá okkur.
- Viðskiptavinir keyptu líka
- Nýlega skoðað