Almond Milk Shower Cream
Sturtugel fyrir þurra og viðkvæma húð. Hreinsar, mýkir og róar húðina. Vegan.
Sérlega milt og mýkjandi sápulaust sturtugel sem hentar vel viðkvæmri og þurri húð. Inniheldur Community Fair Trade möndlumjólk frá Spáni sem mýkir húðinna og gefur henni raka. Ilmurinn er mjúkur og sætur og hefur mildan möndlukeim, blandaðan sandalviði, jasmínu, rósum og musk. Kremkennd blanda sem umbreytist í mjúka, ilmandi og mjólkurkennda froðu. Plastið í umbúðunum er 100% endurunnið og kemur að hluta til úr Community Fair Trade plastendurvinnsluverkefninu okkar í Bengaluru á Indlandi. Flöskurnar og tappana má svo endurvinna á nýjan leik* séu þær flokkaðar rétt.
- Hentar vel viðkvæmri húð
- Inniheldur lífræna möndlumjólk
- Vegan
*Þar sem aðstæður til endurvinnslu leyfa.
Skráðu þig í klúbbinn og fáðu 15% afslátt
Ókeypis heimsending fyrir pantanir yfir 10.000kr.
Aldrei prófað á dýrum
Skilafrestur á jólagjöfum er framlengdur til áramóta.
Community Fair Trade möndlumjólk
Möndlumjólkin okkar kemur frá bændum á Spáni og styður við lífsviðurværi þeirra. Hún er mild og róandi og gefur húðinni ferskan og nærandi raka.

Hvað gerir varan fyrir þig?
Hreinsaðu líkamann og róaðu þurra húð með rakagefandi Almond Milk Shower Cream.
Shower Cream-ið er nú vottað af The Vegan Society og 93% innihaldsefnanna eru af náttúrulegum uppruna, þar á meðal lífræn Community Fair Trade möndlumjólk frá Spáni. Það skilur húðina eftir mjúka, hreina og vel nærða af raka. Ilmurinn minnir á sætar möndlur og flytur þig í sólríkan möndlulund, með keim af sandalviði, jasmínu, rós og musk.
Hentar þurri, viðkvæmri húð. Ríkulegt kremið breytist í silkimjúka, milda og mjólkurkennda froðu. Flaskan er úr 100% endurunnu plasti, þar á meðal Community Fair Trade plasti sem safnað er á götum Bengaluru á Indlandi, og hana má endurvinna*. Tappann líka!
- Shower Cream
- Fer vel með náttúrulega rakavörn húðarinnar
- Hentar vel þurri, viðkvæmri húð
- Skilur húðina eftir mjúka, hreina, róaða og nærða af raka
- Hnetukenndur og kremkenndur ilmur
- 93% innihaldsefna af náttúrulegum uppruna
- Nú vottað af The Vegan Society
- Prófað af húðlæknum
*Þar sem aðstæður til endurvinnslu leyfa.
Svona notarðu vöruna
Nuddaðu yfir líkamann þar til það freyðir og skolaðu af.
Sendingarmáti
Ókeypis heimsending ef pantað er fyrir yfir 10.000kr.
Hægt er að fá heimsent með Dropp eða Íslandspósti. Ef pantað er fyrir kl 14:00, gerum við okkar besta til að koma pöntunni út samdægurs.
Einnig er hægt að sækja í verslunum okkar í Kringlu og Smáralind.
30-daga skilafrestur - sendu okkur vöruna til baka eða komdu við hjá okkur.
- Viðskiptavinir keyptu líka
- Nýlega skoðað