Aloe Soothing Day Cream
Fyrir viðkvæma húð. 48klst rakagjöf. Vegan
Sefandi dagkrem fyrir þurra og viðkvæma húð. Án viðbættra rotvarnarefna, litarefna, ilmefna og alkóhóls. Nú í endurvinnanlegum* glerumbúðum með álloki sem einnig má endurvinna* og glerið er að auki 40% endurunnið. Gefur húðinni raka í allt að 48klst.
- Aloe Vera sefar og róar, viðkvæma húð
- Fyrir ofnæmisgjarna húð
- Community Trade aloe frá Campeche, Mexico
- Engin viðbætt ilmefni, litarefni né alkóhól
- Engin viðbætt rotvarnarefni
- Vegan
*Þar sem aðstæður til endurvinnslu leyfa.
Skráðu þig í klúbbinn og fáðu 15% afslátt
Ókeypis heimsending fyrir pantanir yfir 10.000kr.
Aldrei prófað á dýrum
Skilafrestur á jólagjöfum er framlengdur til áramóta.
Lífrænt Community Fair Trade aloe vera
Handtínt í Mexíkó. Aloe vera róar húðina og gefur henni raka og hjálpar henni að jafna sig þegar kuldinn fer að segja til sín.

Hvað gerir varan fyrir þig?
Viðkvæm húð? Ekkert mál fyrir nýja Aloe Soothing Day Cream, sem gefur nú enn betri raka í 48 klukkustundir og mildar þurrk.
Og það besta? Létt, kremkennd og ilmefnalaus formúlan inniheldur nú 95% innihaldsefna af náttúrulegum uppruna, þar á meðal Community Fair Trade aloe vera frá Campeche í Mexíkó og villta cica frá Madagaskar. Cica er harðdugleg jurt sem er þekkt fyrir róandi og sefandi eiginleika. Viðkvæm húð finnur létti frá óþægindum og þurrki allan daginn.
Dagkremið kemur nú í endurvinnanlegri glerkrukku úr 40% endurunnu gleri með álloki, sem tilvalið er að endurnýta eða endurvinna* aftur og aftur.
- Raki í 48 klukkustundir
- Róar og sefar viðkvæma húð
- Inniheldur Community Fair Trade aloe vera og villta cica
- 95% innihaldsefna af náttúrulegum uppruna
- Án ilmefna
- Vegan
- Prófað af húðlæknum
*Þar sem aðstæður til endurvinnslu leyfa.
Svona notarðu vöruna
- Berðu baunastóran skammt á hreina húð og forðastu augnsvæðið.
- Nuddaðu mjúklega inn í húðina með hreyfingum upp á við.
- Viltu heila rútínu? Byrjaðu á Aloe Soothing Cream Cleanser og Aloe Soothing Toner til að hreinsa burt óhreinindi áður en þú berð á þig kremið.
- Ljúktu með ríkulegu lagi af Skin Defence SPF og dagurinn getur byrjað.
Sendingarmáti
Ókeypis heimsending ef pantað er fyrir yfir 10.000kr.
Hægt er að fá heimsent með Dropp eða Íslandspósti. Ef pantað er fyrir kl 14:00, gerum við okkar besta til að koma pöntunni út samdægurs.
Einnig er hægt að sækja í verslunum okkar í Kringlu og Smáralind.
30-daga skilafrestur - sendu okkur vöruna til baka eða komdu við hjá okkur.
- Viðskiptavinir keyptu líka
- Nýlega skoðað