Banana Truly Nourishing Hair Mask
Fyrir venjulegt og þurrt hár. Djúpnærandi. Vegan
Djúpnæring sem gott er að nota einu sinni í viku. Hentar öllum gerðum hárs og inniheldur lífrænt Community Trade bananamauk frá Ekvador og brasilíuhnetuolíu frá Perú. Gefur hárinu heilbrigðan gljáa, þyngir það ekki og er 100% vegan.
- Gott að nota einu sinni í viku
- Mýkir og gefur gljáa
- Community Trade lífrænt bananamauk
- Vegan
Skráðu þig í klúbbinn og fáðu 15% afslátt
Ókeypis heimsending fyrir pantanir yfir 10.000kr.
Aldrei prófað á dýrum
Skilafrestur á jólagjöfum er framlengdur til áramóta.
Lífrænt bananamauk
Bananar mýkja á náttúrulegan hátt. Við maukum þá í Banana vörurnar okkar, þær ávaxtaríkustu sem við eigum.

Kakósmjör
Þetta sígilda náttúrulega smjör kemur úr kakóplöntunni. Það bráðnar við líkamshita og skilur húðina eftir flauelsmjúka.

Community Fair Trade sheasmjör
Frá samstarfsaðilum okkar í Ghana. Sheasmjör er ríkt af fitu og með þétta, mjúka áferð sem gefur húðinni djúpan og góðan raka.

Hvað gerir varan fyrir þig?
Viltu sléttara hár? Dekraðu við þurrt hár sem á það til að úfna með Banana Truly Nourishing Hair Mask, kraftmeiri en nokkru sinni fyrr.
Maskinn er nú vottaður af The Vegan Society og 96% innihaldsefnanna eru af náttúrulegum uppruna, þar á meðal lífrænt bananamauk, kakósmjör, Community Fair Trade sheasmjör frá Ghana og Community Fair Trade brasilíuhnetuolía frá Perú. Hann ilmar ómótstæðilega af ávöxtum og þurrt hár verður sléttara og minna úfið. Það verður líka mýkra, heilbrigðara og fær nýjan raka, án þess að þyngjast.*
Maskinn inniheldur vegan silkiprótein. Notaðu vel af honum einu sinni í viku sem hluta af 3 skrefa Banana rútínunni okkar til að gera við hárið innan frá og næra það frá rót að endum.*
Dósin er úr 100% endurunnu plasti**, þar á meðal Community Fair Trade endurunnu plasti sem safnað er á götum Bengaluru á Indlandi.
- Djúpnærandi hármaski
- Fyrir þurrt hár sem á það til að úfna
- Nærir hárið frá rót að endum*
- Hárið verður sléttara og minna úfið*
- Ómótstæðilegur ávaxtailmur
- 96% innihaldsefna af náttúrulegum uppruna
- Vottaður af The Vegan Society
*Þegar sjampó, hárnæring og hármaski eru notuð saman. Gerir sjáanlega við hárið.
**Lokið er ekki úr endurunnu plasti.
Svona notarðu vöruna
- Einu sinni í viku, eftir sjampó: dreifðu vel af hármaskanum jafnt í handklæðaþurrt hárið, frá miðju að endum.
- Greiddu í gegnum hárið með Detangling Comb.
- Leyfðu maskanum að bíða í 5 til 10 mínútur.
- Skolaðu úr með volgu vatni.
Sendingarmáti
Ókeypis heimsending ef pantað er fyrir yfir 10.000kr.
Hægt er að fá heimsent með Dropp eða Íslandspósti. Ef pantað er fyrir kl 14:00, gerum við okkar besta til að koma pöntunni út samdægurs.
Einnig er hægt að sækja í verslunum okkar í Kringlu og Smáralind.
30-daga skilafrestur - sendu okkur vöruna til baka eða komdu við hjá okkur.
- Viðskiptavinir keyptu líka
- Nýlega skoðað