Hemp Foot Protector
Fyrir mjög þurra húð. 96klst rakagjöf
Einstaklega mýkjandi og græðandi fótakrem unnið úr hampfræolíu, fullkomið fyrir þurra fætur, hvort sem þeir eru pakkaðir inn í lopasokka og gönguskó á fjöllum eða leikandi frjálsir í sandölum. Inniheldur Community Fair Trade sheasmjör frá Ghana og hampfræolíu frá Frakklandi. Túpurnar er búnar til úr 100% endurunnu áli þannig að þær geta beyglast en það skiptir ekki höfuðmáli því innihaldið helst alveg jafn gott.
- Fótakrem
- Mjög rakagefandi
- Hentar vel fyrir mjög þurra húð á fótum og olnbogum
- Blandað hampfræolíu sem er mjög rík af fitusýrum
- Inniheldur Community Trade hampfræolíu frá Frakklandi
Skráðu þig í klúbbinn og fáðu 15% afslátt
Ókeypis heimsending fyrir pantanir yfir 10.000kr.
Aldrei prófað á dýrum
Skilafrestur á jólagjöfum er framlengdur til áramóta.
Hampfræolía
Við höfum notað hamp síðan 1998. Hampfræolía gefur mikinn raka og inniheldur nauðsynlegar fitusýrur eins og omega-3 og omega-6, auk A- og E-vítamíns. Hampurinn er líka náttúrulega varinn gegn meindýrum svo bændurnir þurfa ekkert skordýraeitur.

Community Fair Trade sheasmjör
Frá samstarfsaðilum okkar í Ghana. Sheasmjör er ríkt af fitu og með þétta, mjúka áferð sem gefur húðinni djúpan og góðan raka.

Hvað gerir varan fyrir þig?
Fætur eins mjúkir og á ungabarni, með kraftmikla Hemp Foot Protector kreminu.
Fyrir gleymdu fæturna sem fela sig í vetrarskóm og þreyttu tærnar sem kíkja út úr sandölum: hjálpin er komin.
Dekraðu við harðduglega hælana og gefðu fótunum kraftmikinn raka sem endist í 96 klukkustundir. Þetta ríkulega krem er hannað fyrir þurra húð og gerir hana slétta og silkimjúka.
Formúlan er 100% vegan og úr 95% innihaldsefnum af náttúrulegum uppruna, þar á meðal Community Fair Trade sheasmjöri frá Ghana og hampfræolíu frá Frakklandi.
Túpurnar eru úr 100% endurunnu áli, svo þær geta komið með smá beyglum og dældum, en innihaldið er alveg jafn gott. Ólíkt fyrri umbúðum okkar er líka auðvelt að endurvinna þær.
Svo farðu úr sokkunum, slakaðu á og berðu ríkulega á þig af þessu kremi fyrir nærandi raka allan daginn.
- Dekurkrem fyrir fætur sem róar þurrk og gerir þreytta fætur sléttari
- Kraftmikill raki í 96 klukkustundir
- Inniheldur hampfræolíu frá Frakklandi
- 95% innihaldsefna af náttúrulegum uppruna
- Vegan
- Prófað af húðlæknum
Sendingarmáti
Ókeypis heimsending ef pantað er fyrir yfir 10.000kr.
Hægt er að fá heimsent með Dropp eða Íslandspósti. Ef pantað er fyrir kl 14:00, gerum við okkar besta til að koma pöntunni út samdægurs.
Einnig er hægt að sækja í verslunum okkar í Kringlu og Smáralind.
30-daga skilafrestur - sendu okkur vöruna til baka eða komdu við hjá okkur.
- Viðskiptavinir keyptu líka
- Nýlega skoðað