Seaweed Oil-control Exfoliator 125ml
Andlitsskrúbbur. Fyrir blandaða húð. Vegan
Beislaðu krafta beltisþarans frá Bretagne héraði í Frakklandi með þessum milda en áhrifaríka andlitsskrúbbi. Hannaður með þarfir blandaðrar húðar í huga, pússar í burtu dauðar húðfrumur án þess að þurrka húðina. Frískandi ilmur sem kætir og hressir, húðin verður skínandi hrein og fersk. Nú í endurbættum, endurvinnanlegum* umbúðum.
- Pússar í burtu dauðar húðflögur
- Kemur jafnvægi á húðina og mattar hana
- Hentar fyrir olíuríka og blandaða húð
- Inniheldur beltisþara frá Bretagne-skaga í Frakklandi
- Vegan
- Prófað af húðlæknum
*Þar sem aðstæður til endurvinnslu leyfa.
Skráðu þig í klúbbinn og fáðu 15% afslátt
Ókeypis heimsending fyrir pantanir yfir 10.000kr.
Aldrei prófað á dýrum
Skilafrestur á jólagjöfum er framlengdur til áramóta.
Fjörugrös
Seaweed línan dregur nafn sitt af fjörugrösum (Irish moss), þörungnum sem við setjum í Seaweed húðvörurnar okkar.

Hvað gerir varan fyrir þig?
Beislaðu kraft þarans með mildum en áhrifaríkum Seaweed Oil-Control Exfoliator.
Hann er hannaður fyrir olíuríka og blandaða húð. Frískandi formúlan pússar burt dauðar húðfrumur án þess að húðin verði stíf eða þurr. Húðin verður tandurhrein, og enginn leiðinlegur þurrkur á eftir.
Nú með 96% innihaldsefna af náttúrulegum uppruna og nýju virku efni úr þara: beltisþara (royal sugar kelp) frá Bretagne í Frakklandi. Beltisþarinn hjálpar til við að jafna olíu og þurrk í húðinni með því að stýra fitumyndun. Útkoman? Hamingjusöm og heilbrigð húð án glans. En sumt breytist ekki: einkennandi ilmurinn sem þú þekkir og elskar er á sínum stað.
Umbúðirnar fengu líka uppfærslu. Skrúbburinn kemur nú í túpu sem má endurvinna 100%*.
*Þar sem aðstæður til endurvinnslu leyfa.
- Pússar burt dauðar húðfrumur
- Húðin verður í jafnvægi og mött
- Hentar olíuríkri og blandaðri húð
- Inniheldur sjálfbært fenginn beltisþara
- 96% innihaldsefna af náttúrulegum uppruna
- Vegan
- Prófað af húðlæknum
Svona notarðu vöruna
- Berðu möndlustóran skammt af skrúbbnum á húðina, 2 til 3 sinnum í viku.
- Nuddaðu í hringi til að pússa burt dauðar húðfrumur.
- Skolaðu af með volgu vatni.
- Viltu heila rútínu? Byrjaðu á Seaweed Oil-Control Face Wash og endaðu á Seaweed Oil-Control Gel Cream sem gefur raka í 48 klukkustundir.
Sendingarmáti
Ókeypis heimsending ef pantað er fyrir yfir 10.000kr.
Hægt er að fá heimsent með Dropp eða Íslandspósti. Ef pantað er fyrir kl 14:00, gerum við okkar besta til að koma pöntunni út samdægurs.
Einnig er hægt að sækja í verslunum okkar í Kringlu og Smáralind.
30-daga skilafrestur - sendu okkur vöruna til baka eða komdu við hjá okkur.
- Viðskiptavinir keyptu líka
- Nýlega skoðað