Swipe It Moisturising Lip Balm
Gefðu vörunum þínum mýkt og örlítinn lit með þessum handhægu og þægilegu varasölvum. Fullkomin stærð í veski eða vasa. Allir litir innihalda Community Fair Trade sheasmjör og gefa vörunum raka og næringu og fallegan gljáa ásamt örlitlum lit og svo eru þeir í endurvinnanlegum* plastumbúðum. Fimm mismunadi litbrigði með mismundandi ilmi, sá glæri er með kiwiilmi, svo eru það bláber, drekaávöxtur, jarðarber og ástríðuávöxtur sem hægt er að velja á milli.
- Fimm falleg litbrigði
- Innihalda allir Community Fair Trade sheasmjör
- Prófað af húðlæknum
- Vegan
- Endurvinnanlegar* umbúðir
*Þar sem aðstæður til endurvinnslu leyfa.
Skráðu þig í klúbbinn og fáðu 15% afslátt
Ókeypis heimsending fyrir pantanir yfir 10.000kr.
Aldrei prófað á dýrum
Skilafrestur á jólagjöfum er framlengdur til áramóta.
Community Fair Trade sheasmjör
Frá samstarfsaðilum okkar í Ghana. Sheasmjör er ríkt af fitu og með þétta, mjúka áferð sem gefur húðinni djúpan og góðan raka.

Hvað gerir varan fyrir þig?
Dekraðu við varirnar og gefðu þeim raka og fallegan lit í einni stroku með kremkenndum varasalva sem er leikur einn að bera á.
Salvinn er í handhægri stærð til að hafa alltaf með sér. Formúlan er úr 95% öflugum rakagefandi innihaldsefnum úr náttúrunni, þar á meðal handunnu Community Fair Trade sheasmjöri frá Ghana sem fengið er á sjálfbæran hátt.
Hann hjálpar vörunum að viðhalda náttúrulegri rakavörn sinni og gefur þeim samstundis fallegan lit.
- 87% sögðu að varan gæfi samstundis aukinn raka*
- 92% sögðu að varan gæfi vörunum samstundis fallegan lit*
- 85% sögðu salvann léttan og að hann klístraðist ekki heldur rynni mjúklega og auðveldlega yfir varirnar*
*Prófað á fjölbreyttum hópi 130 einstaklinga af ólíkum kynjum og aldurshópum, til að tryggja að varan virki vel fyrir alla.
Svona notarðu vöruna
- Strjúktu salvanum yfir varirnar. Þær verða samstundis rakar og sléttari ásýndar með léttum lit.
- Viltu sterkari lit? Bættu við nokkrum umferðum þar til liturinn er eins og þú vilt hafa hann.
- Njóttu mjúkra og vel nærðra vara.
Sendingarmáti
Ókeypis heimsending ef pantað er fyrir yfir 10.000kr.
Hægt er að fá heimsent með Dropp eða Íslandspósti. Ef pantað er fyrir kl 14:00, gerum við okkar besta til að koma pöntunni út samdægurs.
Einnig er hægt að sækja í verslunum okkar í Kringlu og Smáralind.
30-daga skilafrestur - sendu okkur vöruna til baka eða komdu við hjá okkur.
- Viðskiptavinir keyptu líka
- Nýlega skoðað