Full Ylang Ylang Eau De Parfum
Krydd. Hvít blóm. Unisex. Vegan
Full Ylang Ylang Eau de Parfum er unisex, léttkryddaður og flauelsmjúkur ilmur unnin úr Ylang Ylang blómi, einn af fjórum ilmum úr nýju Full Flowers línunni okkar. Þessir ilmir eru marglaga, enda samsettir úr blómum, laufum og stilkum blómanna sem þeir eru kenndir við ásamt ýmiskonar öðru góðgæti sem gefur hverjum ilmi sinn einstaka blæ. Í þessu ilmvatni má greina svartan pipar og mjúka vanillu blandaða höfugum ilmi ylang ylang blómsins en ilmkjarnaolían sem notuð er í þessa dásamlegu blöndu kemur frá Madagaskar, þar sem blómin eru handtýnd. Ilmurinn er vegan og flaskan inniheldur að lágmarki 20% endurunnið gler og hana má endurvinna*. Tappinn er úr viði og korki.
- Endingargott Eau de Parfum
- Léttkryddaður blómailmur
- Blanda af ylang ylang, svörum pipar og vanillu
- Inniheldur ilmkjarnaolíu unna úr handtýndum ylang ylang blómum frá Madagaskar
- Vegan
- Endurvinnanlegar* umbúðir
*Þar sem aðstæður til endurvinnslu leyfa.
Skráðu þig í klúbbinn og fáðu 15% afslátt
Ókeypis heimsending fyrir pantanir yfir 10.000kr.
Aldrei prófað á dýrum
Skilafrestur á jólagjöfum er framlengdur til áramóta.
Innihaldsefni
Alcohol Denat. (69.4%), Aqua/Water/Eau, Parfum/Fragrance, Benzyl Alcohol, Linalool, Citronellol, Geraniol, Isoeugenol, Limonene, Eugenol, Coumarin, Citral, Farnesol.
Hvað gerir varan fyrir þig?
Full Ylang Ylang Eau de Parfum er kryddaður ilmur af hvítum blómum úr nýju Full Flowers línunni okkar. Þessi nýja unisex lína er innblásin af blóminu í heild sinni, bæði karl- og kvenhlutum þess. Í ilmunum mætast mjúk krónublöð, græn lauf, viðarkenndir stilkar, safaríkir ávextir og sæt kvoða, í ilmvötnum sem hjálpa þér að fagna öllum þínum einstöku hliðum og tilfinningum.
Í hjarta ilmsins er dýrmæt ylang ylang ilmkjarnaolía, unnin úr handtíndum ylang ylang blómum á eyjunni Madagaskar. Olían túlkar mjúk krónublöð plöntunnar. Saman við hana blandast ilmandi svartur pipar, sem stendur fyrir kryddaðan ilm greinanna, og sæt, rjómakennd vanilla sem táknar flauelsmjúk laufin. Eftir því sem líður á daginn þróast ilmurinn og afhjúpar hverja einstöku hlið sína, eina af annarri.
90% innihaldsefnanna eru af náttúrulegum uppruna og ilmvatnið er vottað af The Vegan Society.
Flaskan er úr endurunnu gleri og tappinn, sem er hannaður með sjálfbærni í huga, er úr endurnýjanlegum viði og korki. Þegar síðustu droparnir eru búnir má endurvinna flöskuna aftur.*
- Endingargott Eau de Parfum
- Kryddaður ilmur af hvítum blómum
- Tónar af ylang ylang, svörtum pipar og vanillu
- Unnið úr náttúrulegri ylang ylang ilmkjarnaolíu úr blómum sem eru handtínd á eyjunni Madagaskar
- 90% innihaldsefna af náttúrulegum uppruna
- Vottað af The Vegan Society
*Þar sem aðstæður til endurvinnslu leyfa.
Svona notarðu vöruna
Notaðu sparlega eða slepptu þér alveg. Úðaðu þessum ferska ilmi á hálsinn og púlspunktana eins oft og þú vilt. Ef þú heillast af þessum blómailmi, prófaðu þá hina ilmina í Full Flowers línunni.
Sendingarmáti
Ókeypis heimsending ef pantað er fyrir yfir 10.000kr.
Hægt er að fá heimsent með Dropp eða Íslandspósti. Ef pantað er fyrir kl 14:00, gerum við okkar besta til að koma pöntunni út samdægurs.
Einnig er hægt að sækja í verslunum okkar í Kringlu og Smáralind.
30-daga skilafrestur - sendu okkur vöruna til baka eða komdu við hjá okkur.
- Viðskiptavinir keyptu líka
- Nýlega skoðað