British Rose Body Yogurt
Létt gelkrem. Gengur hratt inn í húð. Vegan
British Rose Body Yogurt smýgur á augabragði inn í húðina, jafnvel þótt húðin sé rök, nærir og mýkir og ilmar þar að auki dásamlega. Þú getur kúrt lengur því morgunsturtuferðin styttist heldur betur þegar húðin þarf bara örstuttan tíma til að drekka í sig rakann sem þetta létta en rakamikla gelkrem inniheldur. Gefur húðinni raka í allt að 48klst. Inniheldur Community Fair Trade sheasmjör frá Ghana og möndlumjólk frá Spáni og þar að auki eru umbúðirnar úr 100% endurunnu plasti sem kemur að hluta til úr Community Fair Trade endurvinnsluverkefni The Body Shop á Indlandi.
- Gefur húðinni raka og næringu í allt að 48 klst
- Smýgur inn í húðina á augabragði
- Community Fair Trade möndlu mjólk frá Spáni
- Community Fair Trade sheasmjör frá Ghana
- Vegan
Skráðu þig í klúbbinn og fáðu 15% afslátt
Ókeypis heimsending fyrir pantanir yfir 10.000kr.
Aldrei prófað á dýrum
Skilafrestur á jólagjöfum er framlengdur til áramóta.
Enskt rósaseyði
Fátt er glæsilegra en rósavöndur. Rósaseyðið er þekkt fyrir fínlegan og tímalausan ilm og skilur húðina eftir með ferskum blómailmi.

Community Fair Trade möndlumjólk
Möndlumjólkin okkar kemur frá bændum á Spáni og styður við lífsviðurværi þeirra. Hún er mild og róandi og gefur húðinni ferskan og nærandi raka.

Hvað gerir varan fyrir þig?
Fáðu húð sem er mjúk eins og rósablöð með British Rose Body Yogurt.
Létt gelkremið gengur hratt inn í húðina og gefur raka í 48 klukkustundir, jafnvel þótt þú berir það á raka húð. Það inniheldur rósaseyði og Community Fair Trade möndlumjólk og ilmar dásamlega af ferskum rósablöðum, musk og hlýjum sandalviði. Húðin verður samstundis sléttari, frísklegri og ilmar mjúklega.
- 89% sögðu að það gengi samstundis inn í húðina*
- 92% sögðu að húðin yrði samstundis sléttari*
- 87% sögðu að húðin væri mjúk, slétt og vel nærð allan daginn*
*Notendakönnun meðal 100 þátttakenda eftir tveggja vikna notkun.
Svona notarðu vöruna
- Taktu vænan skammt.
- Nuddaðu inn í húðina eftir sturtu, eða bara hvenær sem þig langar að ilma af ferskum rósum.
- Það gengur inn á nokkrum sekúndum, engin bið.
- Frábært eftir morgunsturtuna eða sem mjúkur endir á deginum fyrir svefninn.
- Notaðu með British Rose Shower Gel og British Rose Hand Cream fyrir fulla rósarútínu.
Sendingarmáti
Ókeypis heimsending ef pantað er fyrir yfir 10.000kr.
Hægt er að fá heimsent með Dropp eða Íslandspósti. Ef pantað er fyrir kl 14:00, gerum við okkar besta til að koma pöntunni út samdægurs.
Einnig er hægt að sækja í verslunum okkar í Kringlu og Smáralind.
30-daga skilafrestur - sendu okkur vöruna til baka eða komdu við hjá okkur.
- Viðskiptavinir keyptu líka
- Nýlega skoðað