Peppermint Invigorating Shower Gel
Kælandi sturtugel. Gott eftir ræktina.
Kælandi sturtugel með piparmintuolíu. Tilvalið eftir erfiða æfingu, hlaup eða í miklum hita. Frískar og kælir og ilmar dásamlega hressandi enda inniheldur þetta sturtugel ekta piparmintuolíu frá Bretlandi. Freyðir vel á húð, hreinsar og mýkir.
- Kælandi sturtugel
- Frískandi piparmintuilmur
- Tilvalið eftir erfiða æfingu eða hlaup. Vegan
Skráðu þig í klúbbinn og fáðu 15% afslátt
Ókeypis heimsending fyrir pantanir yfir 10.000kr.
Aldrei prófað á dýrum
Skilafrestur á jólagjöfum er framlengdur til áramóta.
Piparmyntuolía
Unnin úr nýtíndri enskri piparmyntu. Náttúrulegt mentól gefur húðinni þægilega kælandi tilfinningu.

Hvað gerir varan fyrir þig?
Stökktu í sturtu og finndu kælinguna strax með Peppermint Invigorating Shower Gel.
Þetta er eitt af uppáhalds sturtugelunum okkar. Það verður fljótt að dásamlegri froðu sem skolast af og skilur heita húðina eftir róaða, ferska og rakamikla.
Það inniheldur ilmkjarnaolíu úr piparmintu frá bóndabýlum í Bretlandi sem kælir og hreinsar líkamann samstundis. Tilvalið á sumardögum, eftir æfingu eða fyrir þau sem vilja vera svöl allt árið.
Það er auk þess gert úr 92% innihaldsefnum af náttúrulegum uppruna og skráð hjá The Vegan Society.
Flaskan er úr endurunnu efni og umbúðirnar má endurvinna*.
- Kælandi sturtugel
- Fyrir heitan líkama á fullri ferð
- Heit húð verður hrein og fersk, með piparmintuilmi
- Inniheldur ilmkjarnaolíu úr piparmintu frá bóndabýlum í Bretlandi
- 92% innihaldsefna af náttúrulegum uppruna
- Vottað af The Vegan Society
*Þar sem aðstæður til endurvinnslu leyfa.
Sendingarmáti
Ókeypis heimsending ef pantað er fyrir yfir 10.000kr.
Hægt er að fá heimsent með Dropp eða Íslandspósti. Ef pantað er fyrir kl 14:00, gerum við okkar besta til að koma pöntunni út samdægurs.
Einnig er hægt að sækja í verslunum okkar í Kringlu og Smáralind.
30-daga skilafrestur - sendu okkur vöruna til baka eða komdu við hjá okkur.
- Viðskiptavinir keyptu líka
- Nýlega skoðað