All Day Long Setting Spray
Farðinn endist betur. Rakagefandi. Vörn gegn skjáljósi
Taktu húðrútínuna þína á hærra stig með nýja 3-in-1 makeup setting spreyinu okkar. Með því að spreyja fíngerðum, tvífasa, úðanum yfir farða tryggirðu að farðinn endist lengur á húðinni. Gefur fallegri áferð og betri endingu á farða og veitir húðinni raka allan daginn ásamt því að vernda húðina gegn áhrifum skjáljóss(Blue Light). Inniheldur Community Fair Trade moringa olíu og buddleja extract. Létt formúla sem fer vel inní húðina án þess að stífla húðholur. Spreyjið er ilmefnalaust, mýkjandi og frískandi on-the-go sem þýðir að það má spreyja yfir farða hvenær dagsins sem er.
- Farðinn endist lengur
- Rakagefandi
- Verndar húðina gegn áhrifum skjáljóss
- Ilmefnalaust
- Inniheldur Community Fair Trade moringa olíu
- 93% innihaldsefna af náttúrulegum uppruna (samkvæmt ISO 16128)
- Vottað af The Vegan Society
- Hentar fyrir viðkvæma húð
Skráðu þig í klúbbinn og fáðu 15% afslátt
Ókeypis heimsending fyrir pantanir yfir 10.000kr.
Aldrei prófað á dýrum
Skilafrestur á jólagjöfum er framlengdur til áramóta.
Community Fair Trade moringafræolía
Moringafræolían okkar kemur frá Rúanda. Hún er rík af omega fitusýrum og þekkt fyrir að næra húðina vel.

Lífrænt Community Fair Trade aloe vera
Handtínt í Mexíkó. Aloe vera róar húðina og gefur henni raka og hjálpar henni að jafna sig þegar kuldinn fer að segja til sín.

Hvað gerir varan fyrir þig?
Gerðu daglegu rútínuna enn betri með All Day Long, 3-í-1 setting spreyinu okkar. Fínn úði og nýstárleg tvífasa formúla festa farðann svo hann endist. Og endist. Og endist. Nafnið segir allt sem segja þarf: All Day Long lengir endingu farðans og húðin fær samstundis raka, allan daginn.
Spreyið inniheldur Community Fair Trade moringaolíu og buddleja extract. Það heldur rakanum í húðinni, festir farðann og hjálpar til við að verja húðina gegn áhrifum skjáljóss (blue light) frá raftækjum. Úðinn er léttur, klístrast ekki og gefur farðanum jafnari áferð.
Spreyið stíflar ekki húðholur og hentar jafn vel farðanum og húðinni. Það er ilmefnalaust og heldur húðinni mjúkri og frískri hvar sem þú ert. Það hreyfir ekki við farðanum heldur lengir endingu hans í 8 klukkustundir.
Við viljum að vörurnar okkar virki fyrir alla. Þess vegna prófuðum við spreyið á 100 manns af ólíkum kynjum og aldri, með ólíkar húðgerðir og húðliti sem spanna sex húðtóna Fitzpatrick-skalans.
Spreyið kemur í nýjum umbúðum. Flaskan og tappinn eru úr PET-plasti með 30% endurunnu plasti og má endurvinna*. Fjarlægðu miðann áður en flaskan fer í endurvinnslu. Pumpan inniheldur líka 30% endurunnið plast en er ekki endurvinnanleg vegna blöndu ólíkra efna.
Eftir eina notkun:
- 83% fannst spreyið gefa húðinni samstundis rakaskot
- 78% sögðu að farðinn entist betur
- 77% sögðu að farðinn liti betur út
*Þar sem aðstæður til endurvinnslu leyfa.
Svona notarðu vöruna
Spreyið má nota á fleiri en einn veg, bæði fyrir og eftir förðun.
- Hristu flöskuna vel fyrir notkun, þar til fasarnir tveir hafa blandast vel saman.
- Fyrir förðun: úðaðu yfir nýhreinsaða húð áður en þú berð á þig rakakrem.
- Eftir förðun: haltu flöskunni í um 15 cm fjarlægð frá andlitinu og úðaðu mjúklega yfir alla húðina. Farðinn festist og húðin fær raka.
Berðu aftur á eftir þörfum til að fríska upp á húðina og lengja endingu farðans.
Sendingarmáti
Ókeypis heimsending ef pantað er fyrir yfir 10.000kr.
Hægt er að fá heimsent með Dropp eða Íslandspósti. Ef pantað er fyrir kl 14:00, gerum við okkar besta til að koma pöntunni út samdægurs.
Einnig er hægt að sækja í verslunum okkar í Kringlu og Smáralind.
30-daga skilafrestur - sendu okkur vöruna til baka eða komdu við hjá okkur.
- Viðskiptavinir keyptu líka
- Nýlega skoðað