Fresh Nude Foundation
Fresh Nude Foundation farðinn er léttur og miðlungsþekjandi farði sem inniheldur aloe vera og e vítamín sem gerir formúluna einstaklega rakagefandi og létta á húðinni. Hann hefur góða endingu, er gott að byggja upp og gefur húðinni raka og næringu.
- 27 mismunandi litbrigði
- Allt að 24 stunda raki
- Létt til miðlungs þekja
- Semi mött og fersk áferð
- Hentar viðkvæmri húð og ofnæmisprófað
- Farði fyrir alla venjulega húð í endurvinnanlegum* umbúðum
- Vegan
*Þar sem aðstæður til endurvinnslu leyfa.
Skráðu þig í klúbbinn og fáðu 15% afslátt
Ókeypis heimsending fyrir pantanir yfir 10.000kr.
Aldrei prófað á dýrum
Skilafrestur á jólagjöfum er framlengdur til áramóta.
E-vítamín
E-vítamín, eða tókóferól, er verndandi vítamín sem er vel þekkt í húðumhirðu fyrir að verja húðina og gefa henni raka.

Lífrænt Community Fair Trade aloe vera
Handtínt í Mexíkó. Aloe vera róar húðina og gefur henni raka og hjálpar henni að jafna sig þegar kuldinn fer að segja til sín.

Hvað gerir varan fyrir þig?
Engar málalengingar: Fresh Nude Foundation gerir nákvæmlega það sem stendur á flöskunni. Hann gefur náttúrulega, ljómandi áferð og frísklega rakatilfinningu.
Aðdáendur Fresh Nude geta andað rólega. Þetta er sami náttúrulegi farðinn og þú þekkir og elskar, nú í nýjum og flottum umbúðum sem eru 100% endurvinnanlegar. Við kvöddum dæluna (það er ómögulegt að endurvinna þær) og í staðinn fylgir sniðugur spaði, svo þú tekur áfram nákvæmlega rétt magn.
Og það besta við uppfærsluna? 40 litatónar. Förðunarvörur eiga að vera fyrir alla.
Þetta snýst um að líta út eins og þú sjálf, bara sú öruggasta útgáfa af þér. Þú á góðum húðdegi. Rakagefandi farðinn er svo þægilegur að þú gleymir að þú sért með hann. Hann inniheldur E-vítamín og aloe vera, situr léttur á húðinni án þess að verða kökukenndur og leyfir henni að anda. Húðin fær heilbrigt og slétt yfirbragð með ljómandi áferð, og það sem var þegar fallegt verður enn fallegra.
- Fæst í 40 litatónum
- Miðlungsþekja
- Rakatilfinning í allt að 24 klst.
- Endist allan daginn
- Ljómandi og náttúruleg áferð
- 95% innihaldsefna af náttúrulegum uppruna
- Vegan
- Glerflaska
- 100% endurvinnanlegar umbúðir
- Inniheldur E-vítamín og lífrænt Community Fair Trade aloe vera
- Hentar viðkvæmri húð og prófaður af húðlæknum
Svona notarðu vöruna
- Hristu flöskuna vel.
- Skrúfaðu lokið af og notaðu spaðann sem fylgir til að taka hæfilegt magn. Settu það beint á andlitið eða á handarbakið.
- Dreifðu jafnt yfir andlitið með fingrunum eða Foundation Brush burstanum okkar, með strokum upp á við, og blandaðu vel.
Sendingarmáti
Ókeypis heimsending ef pantað er fyrir yfir 10.000kr.
Hægt er að fá heimsent með Dropp eða Íslandspósti. Ef pantað er fyrir kl 14:00, gerum við okkar besta til að koma pöntunni út samdægurs.
Einnig er hægt að sækja í verslunum okkar í Kringlu og Smáralind.
30-daga skilafrestur - sendu okkur vöruna til baka eða komdu við hjá okkur.
- Viðskiptavinir keyptu líka
- Nýlega skoðað