Tea Tree Face Base
Púðurfarði sem hefur mikinn sveigjanleika í þekju, má nota til að rétt matta og jafna áferð húðarinnar eða í meira magni fyrir mikla þekju sem endist vel og helst falleg í langan tíma án þess að kekkjast. Fæst í 21 litbrigðum. Inniheldur Community Fair Trade Tea Tree olíu sem er þekkt fyrir hreinsandi eiginleika sína og auk þess sem hún hjálpar húðinni við að halda olíuframleiðslu í skefjum án þess að stífla húðholurnar. Þolir vel svita og raka og endist vel á húðinni. Fyrir létt, náttúrulegt útlit, dúmpið létt yfir húðina með svampinum sem fylgir, og ef óskað er eftir meiri þekju, endurtakið og bætið á. Þessi púður koma í áfyllingum, ytri umbúðir eru seldar sér, en þar er um að ræða fallega og endingargóða áldós, Compact for Life, sem endist lengi og má fylla á aftur og aftur og þarf því aðeins að kaupa í eitt skipti. Þegar keypt er ný púðurfylling fylgir henni ávallt nýr svampur og er púðrinu, sem er í endurvinnanlegum* álbakka, pakkað í plastlausar og endurvinnanlegar* pappaumbúðir.
- Púðuráfylling
- Kaupið Compact for Life með púðrinu í fyrsta skiptið
- Farðasvampur fylgir með púðuráfyllingu
- 21 litbrigði að velja úr
- Góð þekja sem auðvelt er að stýra
- Hjálpar húðinni að stilla olíuframleiðslu sína
- Mattar, hylur ójöfnur og jafnar lit
- Endist allan daginn, þolir svita og raka
- Inniheldur Community Fair Trade Tea Tree olíu
- Stíflar ekki húðholur
- Vegan
- Endurvinnanlegar* umbúðir
*Þar sem aðstæður til endurvinnslu leyfa.
Skráðu þig í klúbbinn og fáðu 15% afslátt
Ókeypis heimsending fyrir pantanir yfir 10.000kr.
Aldrei prófað á dýrum
Skilafrestur á jólagjöfum er framlengdur til áramóta.
Community Fair Trade tea tree olía
Eitt öflugasta hreinsandi hráefni náttúrunnar. Samstarfsaðilar okkar í Kenía rækta tréð lífrænt í smáum stíl, handtína laufin og nota ekkert skordýraeitur svo krafturinn haldist sem mestur.

Hvað gerir varan fyrir þig?
Púðuráferðin gerir þér auðvelt að skipta á milli léttrar, mattrar ásýndar og fullrar þekju, án þess að farðinn kekkist.
Tea Tree Face Base fæst í fjölbreyttum litbrigðum. Hann heldur olíu og glansa í skefjum fyrir ferska og matta ásýnd, með þekju sem endist í 12 klukkustundir, svo þú þarft ekki að bæta á.
Hann inniheldur nú Community Fair Trade tea tree olíu frá Kenía, sem er þekkt fyrir náttúrulega hreinsandi eiginleika sína. Púðurfarðinn hjálpar húðinni að virðast hreinni og stíflar ekki svitaholur. Hann þolir svita og raka, hylur bólur og jafnar ásýnd húðlitarins.
Og hann gerir meira en að fela misfellur. Létt formúlan þurrkar ekki húðina og sest ekki í fínar línur, hrukkur eða svitaholur, svo húðin virðist slétt og þekjan helst jöfn allan daginn.
Fyrir náttúrulega áferð berðu hann þurran á með svampinum sem fylgir og leyfir þínu eigin sjálfsöryggi að skína. Fyrir fulla þekju byggirðu hann upp eftir þörfum og færð mattari, gallalausa áferð.
Við viljum að varan virki fyrir alla. Þess vegna prófuðum við Tea Tree Face Base á fjölbreyttum hópi 405 einstaklinga af ólíkum kynjum, aldri, húðlit og húðgerð, sem spannaði sex húðtóna á Fitzpatrick-skalanum.
Eftir eina notkun:
- 79% sögðu að Tea Tree Face Base gæfi miðlungs til fulla þekju
- 75% fannst hann hylja misfellur
- 79% sögðu að hann bætti heildarásýnd húðarinnar
Umbúðirnar hafa líka fengið nýtt útlit, því við viljum alltaf gera betur í sjálfbærni.
- Fæst í fjölbreyttum litbrigðum
- Miðlungs til full þekja með náttúrulegri, mattri áferð
- Heldur olíu og glansa í skefjum
- Hylur bólur
- Endist allan daginn og þolir svita og raka
- Inniheldur Community Fair Trade tea tree olíu frá Kenía
- Stíflar ekki svitaholur
- 90% innihaldsefna af náttúrulegum uppruna og vegan
- Endurvinnanlegar umbúðir
Svona notarðu vöruna
- Notaðu þéttan förðunarbursta eða svampinn sem fylgir og berðu á andlitið með hringlaga hreyfingum. Þekjan er miðlungs og þú getur byggt hana upp í fulla þekju.
- Ofan á fljótandi farða: dúmpaðu léttilega með mjúkum andlitsbursta til að festa farðann, draga úr glansa og fá mýkri áferð.
- Notaðu svampinn til að fríska upp á förðunina yfir daginn, hvar sem þú ert.
Sendingarmáti
Ókeypis heimsending ef pantað er fyrir yfir 10.000kr.
Hægt er að fá heimsent með Dropp eða Íslandspósti. Ef pantað er fyrir kl 14:00, gerum við okkar besta til að koma pöntunni út samdægurs.
Einnig er hægt að sækja í verslunum okkar í Kringlu og Smáralind.
30-daga skilafrestur - sendu okkur vöruna til baka eða komdu við hjá okkur.
- Viðskiptavinir keyptu líka
- Nýlega skoðað