Vitamin C Concealer
Rakagefandi hyljari sem gefur létta þekju og ljóma. Felur bauga, hylur bletti og gefur húðinni frísklegan ljóma. Auðvelt að blanda og endast vel á húðinni, þola vel svita og raka, stífla ekki og eru án silikons.
- Hyljari
- Létt þekja, auðvelt að byggja upp
- Blandast vel
- 95% innihaldsefna af náttúrulegum uppruna (samkvæmt ISO 16128)
- Hentar öllum húðgerðum
- Vegan
Skráðu þig í klúbbinn og fáðu 15% afslátt
Ókeypis heimsending fyrir pantanir yfir 10.000kr.
Aldrei prófað á dýrum
Skilafrestur á jólagjöfum er framlengdur til áramóta.
C-vítamín
Við notum 3-O-Ethyl Ascorbic sýru, stöðugt C-vítamín af náttúrulegum uppruna, sem gefur húðinni fallegri ljóma.

Hvað gerir varan fyrir þig?
Ljómandi húð á augabragði með nýja, fjölhæfa Vitamin C Concealer hyljaranum.
Öflugur hyljari sem inniheldur C-vítamín. Hann er léttur, auðvelt að byggja hann upp, kekkist ekki og hylur bólur, bauga og skeggskugga á augabragði. Og hann sest ekki í línur.
Hann fæst í 20 litbrigðum, svo þinn litur bíður þín. Strjúktu mjúka ásetjaranum hvar sem þú vilt hylja eða lýsa upp. Silkimjúk formúlan blandast áreynslulaust við húðina fyrir náttúrulega áferð sem endist allan daginn, vinnur á ójöfnum húðlit og baugum og gefur húðinni meiri ljóma.
Hyljarinn er vottaður af The Vegan Society og gerður úr 95% innihaldsefna af náttúrulegum uppruna. Þessi litla ofurhetja inniheldur C-vítamín sem hjálpar húðinni að ljóma innan frá. Og það besta? Hann ilmar af upplífgandi sítrus, alveg eins og Vitamin C húðvörulínan okkar.
- Fjölhæfur hyljari sem sest ekki í línur
- Hylur bólur og bauga
- Langvarandi þekja fyrir skeggskugga
- Léttur, auðvelt að byggja upp og endist allan daginn
- Inniheldur C-vítamín af náttúrulegum uppruna
- 100% endurvinnanleg glerflaska*
- 95% innihaldsefna af náttúrulegum uppruna
- Vottaður af The Vegan Society
*Þar sem aðstæður til endurvinnslu leyfa.
Svona notarðu vöruna
- Undirbúðu húðina með uppáhalds húðvörunum þínum.
- Leggðu góðan grunn með Fresh Nude Foundation.
- Berðu Vitamin C Concealer undir augun eða hvar sem þú vilt meiri þekju.
- Blandaðu inn í húðina með fingurgómunum eða Bamboo Concealer Brush.
Sendingarmáti
Ókeypis heimsending ef pantað er fyrir yfir 10.000kr.
Hægt er að fá heimsent með Dropp eða Íslandspósti. Ef pantað er fyrir kl 14:00, gerum við okkar besta til að koma pöntunni út samdægurs.
Einnig er hægt að sækja í verslunum okkar í Kringlu og Smáralind.
30-daga skilafrestur - sendu okkur vöruna til baka eða komdu við hjá okkur.
- Viðskiptavinir keyptu líka
- Nýlega skoðað