This site has limited support for your browser. We recommend switching to Edge, Chrome, Safari, or Firefox.

Frí heimsending af öllum pöntunum yfir 10.000kr

The Body Shop í 50 ár

Skráðu þig á póstlistann

Karfan þín 0

Til hamingju! Þú færð ókeypis heimsendingu. Bættu 10.000 kr í körfuna til að fá ókeypis heimsendingu.
Við eigum því miður ekki nógu mörg eintök af þessari vöru.

Pair with
Samtals Ókeypis
Skoða körfu
Sendingarkostnaður er reiknaður í næsta skrefi.

Full Orange Blossom Eau De Parfum

Ferskur sítrus. Blóm. Unisex. Vegan

9.690 kr
(#67645)

Full Orange Blossom Eau de Parfum er unisex og sérlega ferskur sítrusilmur unnin úr blómi sítrusplantna, einn af fjórum ilmum úr nýju Full Flowers línunni okkar. Þessir ilmir eru marglaga, enda samsettir úr blómum, laufum og stilkum blómanna sem þeir eru kenndir við ásamt ýmiskonar öðru góðgæti sem gefur hverjum ilmi sinn einstaka blæ. Í þessu ilmvatni má greina brakandi ferskan vetiver og hlýjan bergamot ilm blandaðan frísklegum appelsínuilmi sem unnin er úr handtýndum blómum appelsínutrjáa á bökkum Nílarfljóts í Egyptalandi. Ilmurinn er vegan og flaskan inniheldur að lágmarki 20% endurunnið gler og hana má endurvinna*. Tappinn er úr viði og korki.

  • Endingargott Eau de Parfum
  • Ferskur sítrus- og blómailmur
  • Bergamot, appelsínublóm, neroli og vetiver
  • Unninn úr appelsínublómum sem eru handtýnd á bökkum Nílarfljóts í Egyptalandi
  • 91% innihaldsefna af náttúrulegum uppruna (samkvæmt ISO 16128)
  • Vegan

*Þar sem aðstæður til endurvinnslu leyfa. Á ekki við um pumpuna.

Stærð
75 ml 12.920 kr / 100 ml

Skráðu þig í klúbbinn og fáðu 15% afslátt

Ókeypis heimsending fyrir pantanir yfir 10.000kr.

Aldrei prófað á dýrum

Skilafrestur á jólagjöfum er framlengdur til áramóta.


Innihaldsefni

Alcohol Denat. (69.9%), Aqua/Water/ Eau, Parfum/Fragrance, Limonene, Hydroxycitronellal, Linalool, Citronellol, Geraniol, Citral.

Hvað gerir varan fyrir þig?

Full Orange Blossom Eau de Parfum er ferskur sítrusilmur úr nýju Full Flowers línunni okkar. Þessi nýja unisex lína er innblásin af blóminu í heild sinni, bæði karl- og kvenhlutum þess. Í ilmunum mætast mjúk krónublöð, græn lauf, viðarkenndir stilkar, safaríkir ávextir og sæt kvoða, í ilmvötnum sem hjálpa þér að fagna öllum þínum einstöku hliðum og tilfinningum.

Í hjarta ilmsins er dýrmætur appelsínublómakjarni (orange blossom absolute), unninn úr handtíndum blómknúppum appelsínutrjáa við Níl í Egyptalandi. Náttúrulegi kjarninn túlkar ilmandi, gróskumikil krónublöðin og ferskt bergamot stendur fyrir safaríka ávextina. Saman við blandast viðarkenndur vetiver sem táknar stökk, græn laufin. Eftir því sem líður á daginn þróast ilmurinn og afhjúpar hverja einstöku hlið sína, eina af annarri.

91% innihaldsefnanna eru af náttúrulegum uppruna og ilmvatnið er vottað af The Vegan Society.

Flaskan er úr endurunnu gleri og tappinn, sem er hannaður með sjálfbærni í huga, er úr endurnýjanlegum viði og korki. Þegar síðustu droparnir eru búnir má endurvinna flöskuna aftur.*

  • Endingargott Eau de Parfum
  • Ferskur, sítruskenndur og blómlegur
  • Tónar af bergamot, appelsínublómi, neroli og vetiver
  • Unnið úr náttúrulegum appelsínublómakjarna úr blómknúppum appelsínutrjáa, handtíndum við Níl í Egyptalandi
  • 91% innihaldsefna af náttúrulegum uppruna
  • Vottað af The Vegan Society

*Þar sem aðstæður til endurvinnslu leyfa.

Sendingarmáti

Ókeypis heimsending ef pantað er fyrir yfir 10.000kr. 

Hægt er að fá heimsent með Dropp eða Íslandspósti. Ef pantað er fyrir kl 14:00, gerum við okkar besta til að koma pöntunni út samdægurs.

Einnig er hægt að sækja í verslunum okkar í Kringlu og Smáralind.

30-daga skilafrestur - sendu okkur vöruna til baka eða komdu við hjá okkur.


[{"variant_id":"44249160417462" , "preorder":"false" , "final_sale":""}]