Full Rose Eau De Parfum
Ferskleiki. Krydd. Rósir. Unisex. Vegan
Full Rose Eau de Parfum er ferskur og kraftmikill ilmur úr Full Flowers línunni okkar sem hentar öllum kynjum. Þessir ilmir eru marglaga, enda samsettir úr blómum, laufum og stilkum blómanna sem þeir eru kenndir við, ásamt ýmiskonar öðru góðgæti sem gefur hverjum ilmi sinn einstaka blæ. Þessi ilmur er samsettur úr blómi, laufum og stilkum rósar, blandaður kardimommu og laufi geraniumblómsins, svo úr verður dásamlegur, mjúkur en þó kraftmikill ilmur. Inniheldur rósaseyði unnum úr rósum ræktuðum í Grasse í Frakklandi, sem stundum er kölluð höfuðborg ilmvatnsframleiðslu heimsins. Flaskan inniheldur að lágmarki 20% endurunnið gler og tappinn er úr viði og korki.
- Endingargóður Eau de Perfume ilmur
- Ferskur, kryddaður blómailmur
- Rósir, geranium lauf og kardimomma
- Vegan
Skráðu þig í klúbbinn og fáðu 15% afslátt
Ókeypis heimsending fyrir pantanir yfir 10.000kr.
Aldrei prófað á dýrum
Skilafrestur á jólagjöfum er framlengdur til áramóta.
Innihaldsefni
Alcohol Denat. (69.9%), Aqua/Water/Eau, Parfum/Fragrance, Limonene, Geraniol, Citronellol, Linalool, Coumarin, Alpha-Isomethyl Ionone, Citral.
Hvað gerir varan fyrir þig?
Full Rose Eau de Parfum er ferskur og kryddaður ilmur úr nýju Full Flowers línunni okkar. Þessi nýja unisex lína er innblásin af blóminu í heild sinni, bæði karl- og kvenhlutum þess. Í ilmunum mætast mjúk krónublöð, græn lauf, viðarkenndir stilkar, safaríkir ávextir og sæt kvoða, í ilmvötnum sem hjálpa þér að fagna öllum þínum einstöku hliðum og tilfinningum.
Í hjarta ilmsins er dýrmætur rósakjarni (rose absolute), unninn úr handtíndum rósum í Grasse í Frakklandi. Náttúrulegi kjarninn túlkar ilmandi krónublöðin, geraníumlauf standa fyrir stökk, græn lauf rósarunnans og kryddaður kardimommuilmur táknar beitta þyrnana. Eftir því sem líður á daginn þróast ilmurinn og afhjúpar hverja einstöku hlið sína, eina af annarri.
90% innihaldsefnanna eru af náttúrulegum uppruna og ilmvatnið er vottað af The Vegan Society.
Flaskan er úr endurunnu gleri og tappinn, sem er hannaður með sjálfbærni í huga, er úr endurnýjanlegum viði og korki. Þegar síðustu droparnir eru búnir má endurvinna flöskuna aftur.*
- Endingargott Eau de Parfum
- Ferskur, kryddaður og blómlegur
- Tónar af rósakjarna, geraníumlaufi og kardimommu
- Unnið úr náttúrulegum rósakjarna úr rósum sem eru handtíndar í Grasse í Frakklandi
- 90% innihaldsefna af náttúrulegum uppruna
- Vottað af The Vegan Society
*Þar sem aðstæður til endurvinnslu leyfa.
Svona notarðu vöruna
Notaðu sparlega eða slepptu þér alveg. Úðaðu þessum ferska ilmi á hálsinn og púlspunktana eins oft og þú vilt. Ef þú heillast af þessum blómailmi, prófaðu þá hina ilmina í Full Flowers línunni.
Sendingarmáti
Ókeypis heimsending ef pantað er fyrir yfir 10.000kr.
Hægt er að fá heimsent með Dropp eða Íslandspósti. Ef pantað er fyrir kl 14:00, gerum við okkar besta til að koma pöntunni út samdægurs.
Einnig er hægt að sækja í verslunum okkar í Kringlu og Smáralind.
30-daga skilafrestur - sendu okkur vöruna til baka eða komdu við hjá okkur.
- Viðskiptavinir keyptu líka
- Nýlega skoðað