Tea Tree Purifying & Balancing Hair & Scalp
Skrúbbsjampó. Hentar vel fyrir olíuríkan hársvörð. Vegan
Endurnærandi hárskrúbbur og sjampó sem inniheldur tea tree olíu og gróft salt. Djúphreinsar og örvar hársvörðinn og endurnærir. Hentar fyrir venjulegt og olíuríkt hár
- Inniheldur gróft salt sem skrúbbar burtu óhreinindi
- Freyðir vel og gefur hárinu gljáa
- Skrúbbsjampó
- Vegan
Skráðu þig í klúbbinn og fáðu 15% afslátt
Ókeypis heimsending fyrir pantanir yfir 10.000kr.
Aldrei prófað á dýrum
Skilafrestur á jólagjöfum er framlengdur til áramóta.
Community Fair Trade tea tree olía
Eitt öflugasta hreinsandi hráefni náttúrunnar. Samstarfsaðilar okkar í Kenía rækta tréð lífrænt í smáum stíl, handtína laufin og nota ekkert skordýraeitur svo krafturinn haldist sem mestur.

Hvað gerir varan fyrir þig?
Gefðu olíukenndu hári og hársverði alvöru frískleika með Tea Tree Purifying & Balancing Hair & Scalp hárskrúbbnum.
Skrúbburinn er vottaður af The Vegan Society og gerður úr 90% innihaldsefna af náttúrulegum uppruna, þar á meðal lífrænt ræktaðri Community Fair Trade tea tree olíu frá Kenía og saltkristöllum sem skrúbba. Ilmurinn er hressandi.
Notaðu hann einu sinni í viku í stað sjampósins. Olíukennt hár og hársvörður verða endurnærð, full af lífi og hrein*. Hann hjálpar líka til við að koma jafnvægi á umframolíu og fjarlægja uppsöfnuð óhreinindi, svo hárið virðist og er heilbrigðara viðkomu.*
Hann inniheldur vegan silkiprótein. Notaðu hann sem hluta af þriggja skrefa Tea Tree rútínunni okkar, sem hjálpar til við að gera við hárið innan frá.*
Krukkan er gerð úr 100% endurunnu plasti, meðal annars Community Fair Trade plasti sem safnað er á götum Bengaluru á Indlandi.**
- Hreinsandi hárskrúbbur
- Fullkominn fyrir olíukennt hár og hársvörð
- Hárið verður endurnært og fullt af lífi
- Olíukenndur hársvörður kemst í jafnvægi*
- Ilmar einstaklega ferskt og hreint
- 90% innihaldsefna af náttúrulegum uppruna
- Vottað af The Vegan Society
*Árangur þegar sjampó, hárnæring og skrúbbur eru notuð saman. Gerir sjáanlega við hárið.
**Lokið er ekki úr endurunnu plasti.
Svona notarðu vöruna
- Notaðu skrúbbinn einu sinni í viku í stað venjulega sjampósins.
- Bleyttu hárið vel og berðu valhnetustóran skammt beint á hársvörðinn og hárið.
- Nuddaðu mjúklega og njóttu ferskleikans. Vinndu upp froðu frá rót að endum.
- Skolaðu vel og fylgdu eftir með Tea Tree Purifying & Balancing Conditioner.
Sendingarmáti
Ókeypis heimsending ef pantað er fyrir yfir 10.000kr.
Hægt er að fá heimsent með Dropp eða Íslandspósti. Ef pantað er fyrir kl 14:00, gerum við okkar besta til að koma pöntunni út samdægurs.
Einnig er hægt að sækja í verslunum okkar í Kringlu og Smáralind.
30-daga skilafrestur - sendu okkur vöruna til baka eða komdu við hjá okkur.
- Viðskiptavinir keyptu líka
- Nýlega skoðað