Chinese Ginseng & Rice Clarifying Polishing Mask
Andlitsmaski fyrir líflausa, þreytulega húð. Gefur húðinni ljóma og ferskleika.
Þessi skrúbbmaski er gefur húðinni ljóma, bjartara og jafnara yfirbragð ásamt því að næra hana og mýkja. Hann inniheldur ginsengseyði frá Kína en ginseng er stundum kallað "Lífsins rót" og er vel þekkt en spennandi og heilsueflandi innihaldsefni frá austurlöndum fjær. Þá ber að telja hrísgrjónaseyði og Community Fair Trade sesamolíu frá Nicaragua sem gefa húðinni ljóma og mýkt. Maskinn er laus við paraben og hann er gott að nota tvisvar í viku.
- 100% vegetarian
- Kremkenndur skrúbbmaski
- Fyrir líflausa og þreytulega húð
- Gefur húðinni bjartara yfirbragð
- Inniheldur hrísgrjóna- og ginsengseyði
- Inniheldur Community Trade sesamolíu frá Nicaragua
Skráðu þig í klúbbinn og fáðu 15% afslátt
Ókeypis heimsending fyrir pantanir yfir 10.000kr.
Aldrei prófað á dýrum
Skilafrestur á jólagjöfum er framlengdur til áramóta.
Ginsengrótarseyði
Ginsengrót hefur lengi verið virt fyrir kraft sinn og leikur stórt hlutverk í húðumhirðu.

Community Fair Trade sesamolía
Silkimjúk og nærandi olía og gamalt fegrunarleyndarmál fyrir mýkri og sléttari húð. Okkar kemur frá Níkaragva.

Hvað gerir varan fyrir þig?
Lykillinn að mjúkri og fjaðurmagnaðri húð er Chinese Ginseng & Rice Clarifying Polishing Mask.
Þessi skrúbbmaski er innblásinn af ævafornum fegurðarhefðum Austurlanda fjær og inniheldur ginsengseyði frá Kína. Ginseng hefur verið kallað „rót lífsins“ og er aldagömul gjöf úr austri sem gefur fegurðinni nýjan blæ. Við blönduðum því saman við hrísgrjónaseyði og Community Fair Trade sesamolíu frá Níkaragva, og útkoman er maski sem gefur húðinni ljóma og nýtt líf.
Hann er einmitt það sem líflaus húð þarf. Notaðu hann tvisvar til þrisvar í viku og húðin verður bjartari ásýndar og mýkri. Eins og andlitsmeðferð á spa, bara heima í stofu. Berðu hann á, lokaðu augunum og leyfðu huganum að reika í 10 mínútur til dulúðugra fjalla, lótustjarna og ævintýravatna.
Langar þig að kynnast fornum fegurðarleyndarmálum Kína? Gefðu þér stund til að hægja á og njóta róarinnar með þessum rjómakennda lúxusmaska.
- Draumkenndur og rjómakenndur skrúbbmaski fyrir andlitið
- Gefur líflausri húð nýtt líf og ljóma
- Lúxus andlitsmeðferð heima
- Inniheldur hrísgrjóna- og ginsengseyði frá Kína og lífræna Community Fair Trade sesamolíu frá Níkaragva
Svona notarðu vöruna
- Byrjaðu á því að fjarlægja farða og hreinsa húðina.
- Taktu smá af maskanum á fingurna eða á Facial Mask Brush frá okkur.
- Berðu jafnt lag á alla húðina (og á háls og bringu ef þú vilt).
- Leyfðu maskanum að vinna sína fornu töfra í 5 til 10 mínútur á meðan þú tekur þér smá hlé.
- Skolaðu af með volgu vatni í hringhreyfingum til að skrúbba húðina mildilega.
- Notaðu 2 til 3 sinnum í viku fyrir bestan árangur.
Sendingarmáti
Ókeypis heimsending ef pantað er fyrir yfir 10.000kr.
Hægt er að fá heimsent með Dropp eða Íslandspósti. Ef pantað er fyrir kl 14:00, gerum við okkar besta til að koma pöntunni út samdægurs.
Einnig er hægt að sækja í verslunum okkar í Kringlu og Smáralind.
30-daga skilafrestur - sendu okkur vöruna til baka eða komdu við hjá okkur.
- Viðskiptavinir keyptu líka
- Nýlega skoðað