Sheer Touch Lip & Cheek Tint
Varir og kinnar. Fjölbreytt notagildi. Vegan.
Fjölnota, nýr og spennandi lip & cheek tint sem nota má á vanga og varir. Spennandi förðunarvara sem kemur í þægilegum umbúðum og hefur mikið notagildi. Auðvelt að stýra litstyrk og þægilegt að dreifa úr litnum á húðinni. Glerglasið má endurvinna*, en ekki tappann og ásetjarann. Inniheldur lífrænt Community Fair Trade aloe vera frá Mexíkó.
- Auðvelt að byggja upp lit
- Gefur raka
- Létt og klístrast ekki
- Inniheldur lífrænt Community Fair Trade aloe vera frá Mexíkó
- Vegan
*Þar sem aðstæður til endurvinnslu leyfa.
Skráðu þig í klúbbinn og fáðu 15% afslátt
Ókeypis heimsending fyrir pantanir yfir 10.000kr.
Aldrei prófað á dýrum
Skilafrestur á jólagjöfum er framlengdur til áramóta.
Lífrænt Community Fair Trade aloe vera
Handtínt í Mexíkó. Aloe vera róar húðina og gefur henni raka og hjálpar henni að jafna sig þegar kuldinn fer að segja til sín.

Hvað gerir varan fyrir þig?
Því öll elskum við vöru sem gerir margt í einu. Rakagefandi tintin okkar gefa vörum og kinnum fallegan lit á augabragði, í einni handhægri og endurvinnanlegri* flösku sem fer með þér hvert sem er.
Fimm litir sem henta öllum húðlitum. Auðvelt er að byggja litinn upp og tintin gefa raka í 12 klukkustundir. Nokkrar strokur gefa léttan og ferskan lit með daggarblæ, og með því að dúmpa aðeins meira á verður liturinn dýpri og sterkari. Létt formúlan inniheldur Community Fair Trade aloe vera frá Mexíkó, klístrast ekki og rennur saman við húðina fyrir samstundis roða. Gegnsæ áferðin er auðveld í ásetningu með mjúka ásetjaranum, og varir og kinnar verða mjúkar og rakamiklar. Létt og kremkennd formúlan gerir þér kleift að byggja litinn upp og bæta á yfir daginn eftir þörfum.
Gerðu tintið að hluta af daglegri húðumhirðu og förðun fyrir ferskt útlit með daggarblæ. Byrjaðu á að gefa húðinni raka og undirbúa hana með Hemp Serum-in-Primer. Þegar komið er að förðuninni skaltu nota tintið með Fresh Nude Foundation og Vitamin C Concealer í þínum lit.
Hjá The Body Shop leggjum við okkur fram um að vera eins inngildandi og við getum. Þess vegna prófuðum við Lip & Cheek Tint á fjölbreyttum hópi 104 kvenna á ólíkum aldri, með ólíka húðliti og húðgerðir sem spönnuðu sex tóna á Fitzpatrick-skalanum, til að tryggja að varan virki vel fyrir alla.
Eftir eina notkun:
- 79% fannst Sheer Touch þægilegt á vörum og kinnum, þökk sé formúlu sem klístrast ekki
- 76% fannst varan létt á húðinni og gefa sterkan lit sem auðvelt er að byggja upp
- 82% fannst auðvelt að fjarlægja tintið án þess að það smitaðist út um allt
- Litur sem auðvelt er að byggja upp
- Raki í 12 klukkustundir
- Létt og klístrast ekki
- Inniheldur Community Fair Trade aloe vera frá Mexíkó
- 85% innihaldsefna af náttúrulegum uppruna
- Vottað af The Vegan Society
- Endurvinnanleg glerflaska
*Þar sem aðstæður til endurvinnslu leyfa.
Svona notarðu vöruna
- Fyrir léttan roða: strjúktu tintinu mjúklega á varir og kinnar með ásetjaranum.
- Blandaðu því inn í húðina með förðunarbursta, eða með besta förðunartóli náttúrunnar: fingrunum. Mundu bara að þvo hendurnar á eftir.
- Viltu meiri áhrif? Auðvelt er að byggja tintið upp fyrir meiri þekju og lit. Bættu einfaldlega á þar til þú nærð þeim styrk sem þú vilt.
Sendingarmáti
Ókeypis heimsending ef pantað er fyrir yfir 10.000kr.
Hægt er að fá heimsent með Dropp eða Íslandspósti. Ef pantað er fyrir kl 14:00, gerum við okkar besta til að koma pöntunni út samdægurs.
Einnig er hægt að sækja í verslunum okkar í Kringlu og Smáralind.
30-daga skilafrestur - sendu okkur vöruna til baka eða komdu við hjá okkur.
- Viðskiptavinir keyptu líka
- Nýlega skoðað