Blue Musk Hair And Body Wash
Sturtusápa fyrir húð og hár. Hlýr og viðarkenndur ilmur. Vegan
Sturtugel með Blue Musk ilminum sem er léttur, frísklegur og viðarkenndur ilmur samsettur úr lavender, bergamot og sandalviði og hentar öllum kynjum. Mjúkur og þroskaður ilmur. Endurvinnanlegar* og endurunnar umbúðir, plastið í flöskunum er að hluta til úr Community Fair Trade plastverkefni The Body Shop á Indlandi.
- Sturtugel fyrir húð og hár
- Cruelty-free musk
- Mjúk blanda krydda og musks
- Vegan
*Þar sem aðstæður til endurvinnslu leyfa.
Skráðu þig í klúbbinn og fáðu 15% afslátt
Ókeypis heimsending fyrir pantanir yfir 10.000kr.
Aldrei prófað á dýrum
Skilafrestur á jólagjöfum er framlengdur til áramóta.
Community Fair Trade lavender ilmkjarnaolía
Lavender ilmkjarnaolían okkar kemur af hásléttum Haute-Provence í Frakklandi. Hún er rómuð fyrir slakandi áhrif sem hjálpa þér að ná góðum svefni.

Musk ilmur
Sannkallaður leiðtogi í heimi ilmanna. Musk er munúðarfullur og umvefjandi, sætur, púðurkenndur og hreinn.

Sandelviðarilmur
Sannkölluð ilmhetja. Hlýr viðarilmur með grænum tónum og ríkum, mjólkurkenndum keim.

Hvað gerir varan fyrir þig?
Blue Musk Hair & Body Wash hreinsar húð og hár og umvefur þig arómatískum, viðarkenndum ilmi.
Ilmurinn hét áður White Musk® for Men, en við gáfum honum nýtt nafn því við trúum því að góður ilmur eigi að vera fyrir alla. Engar áhyggjur, ilmurinn er alveg sá sami: cruelty-free musk, einkennisilmurinn okkar, í grunninn ásamt tónum af ferskum lavender, ríkulegu geraníum og rjómakenndum sandalviði.
Láttu frískandi ilminn minna þig á að vera nákvæmlega þú. Ríkuleg froðan gefur hársverðinum raka og skilur húð og hár eftir hreinni, mýkri og dásamlega ilmandi. Viltu gera þennan að þínum einkennisilmi? Úðaðu Blue Musk Eau de Toilette á þig eftir sturtuna og gakktu út í daginn með sjálfstraustið í botni.
- Sturtusápa fyrir húð og hár
- Freyðir vel og ríkulega
- Hreinsar húð, hársvörð og hár á mildan hátt
- Húð og hár verða mýkri og ilma dásamlega
- Hársvörðurinn fær raka og hárið verður léttara
- Arómatískur og viðarkenndur ilmur
- Tónar af lavender, geraníum, sandalviði og cruelty-free musk
- Inniheldur lífrænt Community Fair Trade aloe vera frá Mexíkó
- 93% innihaldsefna af náttúrulegum uppruna
- Vottað af The Vegan Society
- Endurvinnanlegur tappi og flaska*
- Flaskan er úr 100% endurunnu plasti, meðal annars Community Fair Trade endurunnu plasti frá Indlandi
*Þar sem aðstæður til endurvinnslu leyfa.
Svona notarðu vöruna
- Skelltu þér í sturtu (eða bað) og kreistu vænan skammt af Blue Musk Hair & Body Wash í lófann.
- Nuddaðu í húð, hársvörð og hár og leyfðu mjúkri froðunni að hreinsa þig.
- Skolaðu og njóttu arómatíska viðarilmsins allan daginn.
Sendingarmáti
Ókeypis heimsending ef pantað er fyrir yfir 10.000kr.
Hægt er að fá heimsent með Dropp eða Íslandspósti. Ef pantað er fyrir kl 14:00, gerum við okkar besta til að koma pöntunni út samdægurs.
Einnig er hægt að sækja í verslunum okkar í Kringlu og Smáralind.
30-daga skilafrestur - sendu okkur vöruna til baka eða komdu við hjá okkur.
- Viðskiptavinir keyptu líka
- Nýlega skoðað