British Rose Lotion-to-milk 200ml
Fyrir venjulega og þurra húð. Vegan.
Létt body lotion með mildum rósailmi. Gengur hratt inn í húðina og heldur henni mjúkri og ljómandi í 72 tíma. Kemur í endurvinnanlegri* plasttúpu sem er gerð úr 30% endurunnu plasti.
- Body lotion með mjög léttri áferð
- 72 tíma raki
- Gefur húðinni ljóma og mýkt
- Inniheldur seyði úr handtíndum, lífrænum enskum rósum og Community Fair Trade Shea Butter
- Vegan
*Þar sem aðstæður til endurvinnslu leyfa.
Skráðu þig í klúbbinn og fáðu 15% afslátt
Ókeypis heimsending fyrir pantanir yfir 10.000kr.
Aldrei prófað á dýrum
Skilafrestur á jólagjöfum er framlengdur til áramóta.
Community Fair Trade sheasmjör
Frá samstarfsaðilum okkar í Ghana. Sheasmjör er ríkt af fitu og með þétta, mjúka áferð sem gefur húðinni djúpan og góðan raka.

Enskt rósaseyði
Fátt er glæsilegra en rósavöndur. Rósaseyðið er þekkt fyrir fínlegan og tímalausan ilm og skilur húðina eftir með ferskum blómailmi.

Hvað gerir varan fyrir þig?
Elskaðu, mýktu og nærðu líkamann sem aldrei fyrr með British Rose Lotion-to-milk, besta body lotion-inu okkar til þessa.
Það er nú vegan og 94% innihaldsefna eru af náttúrulegum uppruna. Létt formúlan breytist úr lotion í mjólk og bráðnar beint inn í venjulega til þurra húð. Húðin verður samstundis mýkri og sléttari og ekkert klístur eða fita situr eftir.
Dásamlegur rósailmurinn fylgir með, og formúlan nærir húðina með 72 klukkustunda raka og gefur henni heilbrigðan ljóma.
Body lotion-ið kemur nú líka í túpu úr 30% endurunnu plasti.
Berðu það á þig eftir smekk, lítið eða ríkulega.
- Body lotion
- Fullkomið fyrir venjulega til þurra húð
- Mýkir húðina og gefur 72 klukkustunda raka
- Klístrast ekki og er ekki fitugt
- 94% innihaldsefna af náttúrulegum uppruna
- Vottað af The Vegan Society
- Prófað af húðlæknum
Sendingarmáti
Ókeypis heimsending ef pantað er fyrir yfir 10.000kr.
Hægt er að fá heimsent með Dropp eða Íslandspósti. Ef pantað er fyrir kl 14:00, gerum við okkar besta til að koma pöntunni út samdægurs.
Einnig er hægt að sækja í verslunum okkar í Kringlu og Smáralind.
30-daga skilafrestur - sendu okkur vöruna til baka eða komdu við hjá okkur.
- Viðskiptavinir keyptu líka
- Nýlega skoðað