Camomile Gentle Eye Makeup Remover
Mildur, vatnskenndur augnfarðahreinsir sem fjarlægir allan augnfarða á augabragði en er nógu mildur til þess að erta ekki viðkvæma húð augnsvæðisins. Kemur í 100% endurunninn plastflösku sem má endurvinna á ný*. Inniheldur Kamillu sem er sefandi fyrir viðkvæma húð.
- Hentar fyrir viðkvæma húð
- Hentar fyrir fólk með linsur
- Camomile extract frá Norfolk, Englandi
- Fjarlægir augnfarða
- Án viðbættra ilmefna, litarefna og alkóhóls
- Vegan
*Þar sem aðstæður til endurvinnslu leyfa.
Skráðu þig í klúbbinn og fáðu 15% afslátt
Ókeypis heimsending fyrir pantanir yfir 10.000kr.
Aldrei prófað á dýrum
Skilafrestur á jólagjöfum er framlengdur til áramóta.
Kamilluolía
Kamilluolía frá Norfolk á Englandi, þekkt fyrir að róa og sefa húðina.

Hvað gerir varan fyrir þig?
Bræðir burt maskara, þurrkar út augnblýant og fjarlægir augnskugga. Hér er Camomile Gentle Eye Makeup Remover.
Hvort sem þú ert með smokey augu, eyeliner með spíss eða glitrandi augnskugga yfir öll augnlokin, er mildur augnfarðahreinsir besti vinur þinn. Létt og frískandi formúlan rennur yfir húðina og bræðir farðann af augnhárum og augnlokum, en fer mjúklega með viðkvæma húðina í kringum augun. Við prófuðum hann á 105 konum með alls konar húðlit og hann hentar líka þeim sem nota augnlinsur.
95% innihaldsefna eru af náttúrulegum uppruna og hann inniheldur sefandi kamilluseyði frá Norfolk á Englandi. Hann hentar viðkvæmri húð, er silkimjúkur á húðinni og fjarlægir hverja einustu ögn af augnfarða svo húðin verður tandurhrein. Bless, pandaaugu.
Flaskan er úr 100% endurunnu plasti og hana má endurvinna aftur*.
Langar þig að kynnast fleiri vörum úr Camomile línunni? Hún er nógu mild fyrir allar húðgerðir, og þar finnurðu meðal annars vinsæla Camomile Sumptuous Makeup Cleansing Butter, sem leysir upp farða af öllu andlitinu. Húðin verður hrein og falleg á ný.
- Nógu mildur fyrir viðkvæma húð og þá sem nota augnlinsur
- Inniheldur kamilluvatn
- Augnfarðinn bráðnar burt eins og hann hafi aldrei verið þar
- Fer mjúklega með augnhár og augnlok og skilur þau eftir hreinni
- Prófað af augnlæknum
*Þar sem aðstæður til endurvinnslu leyfa.
Sendingarmáti
Ókeypis heimsending ef pantað er fyrir yfir 10.000kr.
Hægt er að fá heimsent með Dropp eða Íslandspósti. Ef pantað er fyrir kl 14:00, gerum við okkar besta til að koma pöntunni út samdægurs.
Einnig er hægt að sækja í verslunum okkar í Kringlu og Smáralind.
30-daga skilafrestur - sendu okkur vöruna til baka eða komdu við hjá okkur.
- Viðskiptavinir keyptu líka
- Nýlega skoðað