Full Iris Eau De Parfum
Mýkt. Viður og blóm. Unisex. Vegan
Full Iris Eau de Parfum er unisex, léttkryddaður og viðarkenndur ilmur unnin úr Írisblómi, einn af fjórum ilmum úr nýju Full Flowers línunni okkar. Þessir ilmir eru marglaga, enda samsettir úr blómum, laufum og stilkum blómanna sem þeir eru kenndir við ásamt ýmiskonar öðru góðgæti sem gefur hverjum ilmi sinn einstaka blæ. Í þessu ilmvatni má greina, auk Írisblómsins, hlýjan og mjúkan sedrusvið og frískandi einiber. Ilmurinn breytist eftir því sem dagurinn líður enda er hann flókinn og margslunginn. Falleg flaskan inniheldur að lágmarki 20% endurunnið gler og má endurvinna*, tappinn er úr viði og korki og ilmurinn er vegan.
- Endingargott Eau de Parfum
- Mjúkur, viðarkenndur blómailmur
- Einiber, Íris og sedrus
- Gerður úr seyði Írisblóma frá suður-Frakklandi
- Vegan
*Þar sem aðstæður til endurvinnslu leyfa.
Skráðu þig í klúbbinn og fáðu 15% afslátt
Ókeypis heimsending fyrir pantanir yfir 10.000kr.
Aldrei prófað á dýrum
Skilafrestur á jólagjöfum er framlengdur til áramóta.
Innihaldsefni
Alcohol Denat. (69.9%), Aqua/Water/Eau, Parfum/Fragrance, Linalool, Limonene, Citral.
Hvað gerir varan fyrir þig?
Full Iris Eau de Parfum er mjúkur, viðarkenndur ilmur úr nýju Full Flowers línunni okkar. Þessi nýja unisex lína er innblásin af blóminu í heild sinni, bæði karl- og kvenhlutum þess. Í ilmunum mætast mjúk krónublöð, græn lauf, viðarkenndir stilkar, safaríkir ávextir og sæt kvoða, í ilmvötnum sem hjálpa þér að fagna öllum þínum einstöku hliðum og tilfinningum.
Í hjarta ilmsins er dýrmætt írisþykkni (iris concrete), unnið úr stilkum írisblóma sem eru ræktuð og uppskorin á þremur árum í Suður-Frakklandi. Náttúrulegi kjarninn túlkar púðurmjúk krónublöðin, kryddkennd einiber standa fyrir ilmandi stilkana og mjúkur sedrusviður táknar viðarkenndar ræturnar. Eftir því sem líður á daginn þróast ilmurinn og afhjúpar hverja einstöku hlið sína, eina af annarri.
91% innihaldsefnanna eru af náttúrulegum uppruna og ilmvatnið er vottað af The Vegan Society.
Flaskan er úr endurunnu gleri og tappinn, sem er hannaður með sjálfbærni í huga, er úr endurnýjanlegum viði og korki. Þegar síðustu droparnir eru búnir má endurvinna flöskuna aftur.*
- Endingargott Eau de Parfum
- Mjúkur, viðarkenndur og blómlegur
- Tónar af einiberjum, írisþykkni og sedrusviði
- Unnið úr náttúrulegu írisþykkni úr stilkum írisblóma, ræktuðum og uppskornum á 3 árum í Suður-Frakklandi
- 91% innihaldsefna af náttúrulegum uppruna
- Vottað af The Vegan Society
*Þar sem aðstæður til endurvinnslu leyfa.
Svona notarðu vöruna
Notaðu sparlega eða slepptu þér alveg. Úðaðu þessum ferska ilmi á hálsinn og púlspunktana eins oft og þú vilt. Ef þú heillast af þessum blómailmi, prófaðu þá hina ilmina í Full Flowers línunni.
Sendingarmáti
Ókeypis heimsending ef pantað er fyrir yfir 10.000kr.
Hægt er að fá heimsent með Dropp eða Íslandspósti. Ef pantað er fyrir kl 14:00, gerum við okkar besta til að koma pöntunni út samdægurs.
Einnig er hægt að sækja í verslunum okkar í Kringlu og Smáralind.
30-daga skilafrestur - sendu okkur vöruna til baka eða komdu við hjá okkur.
- Viðskiptavinir keyptu líka
- Nýlega skoðað