Jamaican Black Castor Oil Cleansing Conditioner
Hárhreinsir fyrir krullur og liði. Hreinsar og styrkir. Vegan
Froðulaus en dásamlega kremkennd formúla sem hreinsar krullaða hárið þitt og hársvörð á mildan hátt. Þróað í samvinnu við hóp fólks frá öllum heimshornum og með alls kyns krullað og hrokkið hár, fólki frá Brasilíu, Indónesíu, Suður-Afríku, Bretlandi og Bandaríkjunum, vegna þess að þú verður að hafa krullur til að skilja krullur! Auk castor olíu frá Jamaíka, inniheldur þessi vara Community Fair Trade sheasmjör ásamt vegan keratíni sem næra og styrkja hárið.
- Hreinsar og nærir hárið
- Sérhannað fyrir krullað og liðað hár
- Hreinsar hár og hársvörð á mildan hátt og freyðir ekki
- Rænir hárið ekki náttúrulegum olíum sínum
- Auðveldar þér að greiða úr flækjum og gerir hárið meðfærilegar
- Vegan
Skráðu þig í klúbbinn og fáðu 15% afslátt
Ókeypis heimsending fyrir pantanir yfir 10.000kr.
Aldrei prófað á dýrum
Skilafrestur á jólagjöfum er framlengdur til áramóta.
Innihaldsefni
Aqua/Water/Eau, Cetearyl Alcohol, Cetrimonium Chloride, Parfum/Fragrance, Phenoxyethanol, PCA Glyceryl Oleate, Ricinus Communis Seed Oil/Ricinus Communis (Castor) Seed Oil, Hydroxypropylcellulose, Lecithin, Panthenol, Propylene Glycol, Butyrospermum Parkii Butter/Butyrospermum Parkii (Shea) Butter, Bis-Diglyceryl Polyacyladipate-2, Hydrolyzed Vegetable Protein, Sodium Hydroxide, Limonene, Linalool, Eugenol, Sodium Benzoate, Citric Acid, Caramel.
Hvað gerir varan fyrir þig?
Liðir, krullur og hrokkið hár eiga skilið gott dekur, og það er nákvæmlega það sem Jamaican Black Castor Oil Cleansing Conditioner gerir.
Línan var þróuð í samstarfi við hóp fólks með alls kyns liðað, krullað og hrokkið hár, alls staðar að úr heiminum, meðal annars frá Brasilíu, Indónesíu, Suður-Afríku, Bretlandi og Bandaríkjunum. Því það skilur enginn krullur nema sá sem er með þær!
Formúlan freyðir ekki en er dásamlega kremkennd. Hún hreinsar hársvörðinn mjúklega og hjálpar til við að losa uppsöfnun, um leið og hún gefur hárinu raka frá rót til enda. Bless óhreinindi, halló raki.
Inniheldur svarta castor olíu frá Jamaíka, vegan keratínprótein og Community Fair Trade sheasmjör frá Ghana. Jamaican Black Castor Oil hárrútínan er klínískt sönnuð til að styrkja og endurbyggja hárið og draga úr skemmdum inni í hárstráinu.*
Flaskan er úr 100% endurunnu plasti, meðal annars Community Fair Trade endurunnu plasti frá Indlandi.**
Eftir fyrstu notkun:
- 87% fannst hárið ekki missa raka
- 86% fannst hárið hreinsað á mildan hátt
- 85% fannst hárið vel nært
- 84% sögðu að hársvörðurinn væri hreinn
Notendakönnun meðal 101 þátttakanda með liðað, krullað og hrokkið hár af gerð 3A til 4C.
*Rannsókn á rannsóknarstofu á viðloðun efna við mannshár (Substantivity of Human Hair) með skönnunar-flúrljómunarsmásjá, gerð á 30 hárum. Árangur náðist þegar öll rútínan var notuð saman, Cleansing Conditioner, Intense Moisture Mask, Leave-in Conditioner og Curl Activator, borið saman við sjampó án næringar. Lagar hárið sýnilega.
**Lokið er ekki úr endurunnu plasti.
Svona notarðu vöruna
- Bleyttu hárið vel.
- Nuddaðu vel af hreinsinæringunni á milli handanna og berðu í hárið, frá rót til enda.
- Nuddaðu inn og gefðu hársverðinum sérstaka athygli. Hann á það skilið.
- Greiddu úr flækjum með grófri greiðu, eða bara fingrunum, þeir gera sama gagn.
- Skolaðu allt kremið úr.
- Endurtaktu skref 2 til 5 ef hársvörðurinn þarf á því að halda.
Sendingarmáti
Ókeypis heimsending ef pantað er fyrir yfir 10.000kr.
Hægt er að fá heimsent með Dropp eða Íslandspósti. Ef pantað er fyrir kl 14:00, gerum við okkar besta til að koma pöntunni út samdægurs.
Einnig er hægt að sækja í verslunum okkar í Kringlu og Smáralind.
30-daga skilafrestur - sendu okkur vöruna til baka eða komdu við hjá okkur.
- Viðskiptavinir keyptu líka
- Nýlega skoðað