This site has limited support for your browser. We recommend switching to Edge, Chrome, Safari, or Firefox.

Frí heimsending af öllum pöntunum yfir 10.000kr

The Body Shop í 50 ár

Skráðu þig á póstlistann

Karfan þín 0

Til hamingju! Þú færð ókeypis heimsendingu. Bættu 10.000 kr í körfuna til að fá ókeypis heimsendingu.
Við eigum því miður ekki nógu mörg eintök af þessari vöru.

Pair with
Samtals Ókeypis
Skoða körfu
Sendingarkostnaður er reiknaður í næsta skrefi.

Jamaican Black Castor Oil Curl Activator

Fyrir krullað og liðað hár. Styrkir og fegrar hárið. Vegan

2.990 kr
(#67270)

Leyfðu krullunum að njóta sín með Jamaican Black Castor Oil Curl Activator. Hárið verður heilbrigðara í útliti og krullurnar skoppa og liðast í fallegum bylgjum. Inniheldur Community Fair Trade sheasmjör ásamt vegan keratíni sem næra og styrkja hárið. Þróað í samvinnu við hóp fólks frá öllum heimshornum og með alls kyns krullað og hrokkið hár, fólki frá Brasilíu, Indónesíu, Suður-Afríku, Bretlandi og Bandaríkjunum, vegna þess að þú verður að hafa krullur til að skilja krullur! Þessi vara kemur í plasttúpu sem búin er til úr 30% endurunnu plasti sem má svo fara aftur í endurvinnslu með öðru plasti.

  • Curl activator
  • Fyrir allar krullur og liði
  • Þyngir ekki hárið
  • Vegan
Stærð
200 ml 1.495 kr / 100 ml

Skráðu þig í klúbbinn og fáðu 15% afslátt

Ókeypis heimsending fyrir pantanir yfir 10.000kr.

Aldrei prófað á dýrum

Skilafrestur á jólagjöfum er framlengdur til áramóta.


Community Fair Trade sheasmjör

Frá samstarfsaðilum okkar í Ghana. Sheasmjör er ríkt af fitu og með þétta, mjúka áferð sem gefur húðinni djúpan og góðan raka.

Community Fair Trade sheasmjör

Svört laxerolía

Kemur frá Jamaíka þar sem hún hefur verið notuð kynslóð fram af kynslóð til að hugsa um krullað og liðað hár.

Svört laxerolía
1/2 Lykilhráefni
Hvað gerir varan fyrir þig?

Leyfðu náttúrulegu krullunum þínum að njóta sín með Jamaican Black Castor Oil Curl Activator.

Mótaðar, sterkar og fjaðrandi krullur alla daga. Þetta létta og einfalda krem dregur úr úfningi og mótar hárið með léttu og náttúrulegu haldi. Strjúktu silkimjúku kreminu í gegnum rakt eða þurrt hárið fyrir krullur sem líta út fyrir að vera heilbrigðar, vel nærðar og sterkari.

Svört castor olía frá Jamaíka og Community Fair Trade sheasmjör halda krullunum nærðum og rökum. Við bættum líka við vegan keratínpróteini sem hjálpar til við að styrkja og endurbyggja* krullurnar. Jamaican Black Castor Oil hárrútínan er klínískt sönnuð til að draga úr skemmdum inni í hárstráinu og á yfirborði hársins.*

Línan var þróuð í samstarfi við hóp fólks með alls kyns liðað, krullað og hrokkið hár, alls staðar að úr heiminum, meðal annars frá Brasilíu, Indónesíu, Suður-Afríku, Bretlandi og Bandaríkjunum. Því það skilur enginn krullur nema sá sem er með þær!

Túpan er úr 30% endurunnu plasti. Túpuna og tappann má endurvinna þar sem aðstæður leyfa.

Eftir fyrstu notkun:

  • 77% sögðu að minna bæri á lausum hárum sem standa út í loftið
  • 74% sögðu að hárið virtist fjaðrandi
  • 72% fannst hárið virðast sléttara
  • 70% fannst hárið virðast glansmeira

Notendakönnun meðal 100 þátttakenda með liðað, krullað og hrokkið hár af gerð 3A til 4C.

*Rannsókn á rannsóknarstofu á viðloðun efna við mannshár (Substantivity of Human Hair) með skönnunar-flúrljómunarsmásjá, gerð á 30 hárum. Árangur náðist þegar öll rútínan var notuð saman, Cleansing Conditioner, Intense Moisture Mask, Leave-in Conditioner og Curl Activator, borið saman við sjampó án næringar. Lagar hárið sýnilega.

Svona notarðu vöruna

  1. Notaðu í rakt eða þurrt hár til að móta krullurnar.
  2. Skiptu hárinu í lokka, taktu vel af kreminu, nuddaðu því á milli lófanna og dreifðu jafnt í hárið, einn lokk í einu.
  3. Til að skerpa á krullunum og temja laus hár fljótt geturðu strokið smá kremi yfir krullurnar hvenær sem er.
  4. Til að lengja krullurnar skaltu bera kremið í blautt hárið með því að strjúka niður á við.
  5. Fyrir úfið og loftmikið útlit með auka fyllingu skaltu bera í rakt hárið og hrista hárið við rótina þegar það er orðið þurrt.

Sendingarmáti

Ókeypis heimsending ef pantað er fyrir yfir 10.000kr. 

Hægt er að fá heimsent með Dropp eða Íslandspósti. Ef pantað er fyrir kl 14:00, gerum við okkar besta til að koma pöntunni út samdægurs.

Einnig er hægt að sækja í verslunum okkar í Kringlu og Smáralind.

30-daga skilafrestur - sendu okkur vöruna til baka eða komdu við hjá okkur.


[{"variant_id":"44249157271734" , "preorder":"false" , "final_sale":""}]