Maca Root & Aloe Softening Shaving Cream For Men
Gefur raka og mýkt. Mýkir grófa húð. Vegetarian
Þykk og kremkennd raksápa sem færir húðinni raka og mýkt og auðveldar þannig raksturinn. Hentar öllum húðgerðum.
- Mýkir húðina
- Gott að vinna þessa raksápu með rakburstanum okkar
- Undirbýr húðina fyrir betri rakstur
Skráðu þig í klúbbinn og fáðu 15% afslátt
Ókeypis heimsending fyrir pantanir yfir 10.000kr.
Aldrei prófað á dýrum
Skilafrestur á jólagjöfum er framlengdur til áramóta.
Lífrænt Community Fair Trade aloe vera
Handtínt í Mexíkó. Aloe vera róar húðina og gefur henni raka og hjálpar henni að jafna sig þegar kuldinn fer að segja til sín.

Hvað gerir varan fyrir þig?
Maca Root & Aloe Softening Shaving Cream undirbýr myndarlega andlitið þitt fyrir þéttan, hreinan og þægilegan rakstur.
Til í nýja nálgun á raksápu? Þá ertu á réttum stað. Þetta krem inniheldur macarót sem mýkir svo um munar. Hvort sem hipsteraskeggið er á leið á eftirlaun (það var gaman á meðan það entist) eða þriggja daga broddarnir eiga að fjúka, þá líturðu út og líður eins og nýr maður.
Kremið inniheldur líka Community Fair Trade aloe vera frá Mexíkó og hentar því vel fyrir viðkvæma, grófa eða þurra húð. Það vinnst mjúklega upp í kremkennt löður sem undirbýr húðina og mýkir hárin, svo rakvélin rennur ljúflega og raksturinn verður sléttur.
Kremið passar fullkomlega með Shaving Brush rakburstanum okkar. Rakbursti er ekki bara gamaldags græja, hann á heima við hliðina á rakvélinni. Hann eykur löðrið úr raksápunni og hámarkar áhrifin. Hæ, myndarlegur.
- Inniheldur Community Fair Trade aloe vera frá Mexíkó
- Inniheldur macarót sem gerir húðina einstaklega mjúka og rakamikla
- Prófað á karlmönnum, ekki dýrum
Svona notarðu vöruna
- Berðu á blautt skeggið með fingurgómunum, eða með rakbursta ef þú vilt gera vel við þig.
- Dreifðu jafnt í þykku, kremkenndu lagi yfir andlitið.
- Rakaðu þig og skolaðu svo með vatni.
- Fyrir fullkominn rakstur skaltu fylgja eftir með Maca Root & Aloe Post-shave Water-gel, svo húðin verði róleg og rakamikil.
Ef kremið berst í augu, skolaðu þau strax.
Sendingarmáti
Ókeypis heimsending ef pantað er fyrir yfir 10.000kr.
Hægt er að fá heimsent með Dropp eða Íslandspósti. Ef pantað er fyrir kl 14:00, gerum við okkar besta til að koma pöntunni út samdægurs.
Einnig er hægt að sækja í verslunum okkar í Kringlu og Smáralind.
30-daga skilafrestur - sendu okkur vöruna til baka eða komdu við hjá okkur.
- Viðskiptavinir keyptu líka
- Nýlega skoðað