Olive Cleansing Face & Body Bar
Sápustykki fyrir andlit og líkama. Frískandi og hreinsandi. Vegan
Milt sápustykki fyrir andlitið og líkamann, með ferskum en hlutlausum ilmi.
- Freyðir vel og mýkir húðina
- Ferskur og mildur ilmur
- Má nota á húð andlitsins
- Freyðir vel
- Þurrkar ekki húðina
- Community Fair Trade olívuolía frá Ítalíu
Skráðu þig í klúbbinn og fáðu 15% afslátt
Ókeypis heimsending fyrir pantanir yfir 10.000kr.
Aldrei prófað á dýrum
Skilafrestur á jólagjöfum er framlengdur til áramóta.
Lífræn Community Fair Trade ólífuolía
Þetta fljótandi gull hefur mýkt húðina í þúsundir ára. Okkar kemur úr ólífulundum á Suður-Ítalíu.

Hvað gerir varan fyrir þig?
Mjúk, slétt og fersk húð með nýju og endurbættu Olive Cleansing Face & Body Bar, sápustykki með háu hlutfalli innihaldsefna af náttúrulegum uppruna.
Fjölhæft sápustykkið hreinsar þig frá toppi til táar og gefur andliti og líkama gott dekur. Ríkuleg og mjúk froðan skilur allar húðgerðir eftir hreinar og ferskar. Ferskur, grænn ilmurinn er í jafnvægi við mildan blómakeim. Lokaðu augunum og þú gætir verið í sólríkum ólífulundi við Miðjarðarhafið, innan um heilnæma ávextina.
Það er vottað af The Vegan Society, gert úr 90% innihaldsefnum af náttúrulegum uppruna og inniheldur lífræna Community Fair Trade ólífuolíu frá Ítalíu. Viðskiptin okkar hjálpa til við að varðveita hefðbundnar framleiðsluaðferðir og skapa störf fyrir yngri kynslóðir. Sápustykkið kemur í pappírsumbúðum sem eru 100% endurvinnanlegar*. Einfaldlega dásamlegt.
*Sápuumbúðirnar okkar má nú endurvinna víðar en áður, þar sem aðstæður til endurvinnslu leyfa.
- Hreinsistykki fyrir andlit og líkama
- Fyrir allar húðgerðir
- Frískandi og hreinsandi
- 90% innihaldsefna af náttúrulegum uppruna
- Vottað af The Vegan Society
- Prófað af húðlæknum
Svona notarðu vöruna
- Bleyttu sápustykkið undir vatni.
- Nuddaðu þar til það freyðir.
- Berðu froðuna á raka húðina.
- Skolaðu af.
Sendingarmáti
Ókeypis heimsending ef pantað er fyrir yfir 10.000kr.
Hægt er að fá heimsent með Dropp eða Íslandspósti. Ef pantað er fyrir kl 14:00, gerum við okkar besta til að koma pöntunni út samdægurs.
Einnig er hægt að sækja í verslunum okkar í Kringlu og Smáralind.
30-daga skilafrestur - sendu okkur vöruna til baka eða komdu við hjá okkur.
- Viðskiptavinir keyptu líka
- Nýlega skoðað