Peptalk Lipstick Bullet Refill
Við erum ekki frá því að hér sé kominn hinn fullkomni varalitur. Hér er á ferðinni léttur og flauelsmjúkur varalitur sem nærir varirnar enda inniheldur hann Community Fair Trade sheasmjör frá Ghana. Hann kemur í 20 dásamlega fallegum og endingargóðum litbrigðum svo öll ættu að finna lit sem hentar litarhafti og skapi hvers og eins og áferðin er gullfalleg, mitt á milli þess að vera glansandi og mött. Þar að auki er hægt að kaupa umbúðir og varalitinn sjálfan í sitt hvoru lagi. Varalitaboxið er selt sér, og það er úr endingargóðu áli sem nota má aftur og aftur.
- Endingargóður varalitur, áfylling
- Nærir varirnar í allt að 12klst
- Léttur og þægilegur á vörum
- Vegan
- Inniheldur Community Fair Trade sheasmjör frá Ghana
- Léttur og hentar öllum húðgerðum, einnig viðkvæmri
Skráðu þig í klúbbinn og fáðu 15% afslátt
Ókeypis heimsending fyrir pantanir yfir 10.000kr.
Aldrei prófað á dýrum
Skilafrestur á jólagjöfum er framlengdur til áramóta.
Innihaldsefni
Ricinus Communis Seed Oil/Ricinus Communis (Castor) Seed Oil, Octyldodecanol, Candelilla Cera/Euphorbia Cerifera (Candelilla) Wax/Cire de candelilla, Alumina, Mica, Aluminum Hydroxide, Caprylic/Capric Triglyceride, Talc, Barium Sulfate, Hydrogenated Castor Oil, Silica, Aluminum Benzoate, Synthetic Fluorphlogopite, Bis-Diglyceryl Polyacyladipate-2, Dextrin Isostearate, Butyrospermum Parkii Butter/Butyrospermum Parkii (Shea) Butter, Stearalkonium Hectorite, Calcium Aluminum Borosilicate, Propylene Carbonate, Tocopheryl Acetate, Tin Oxide, Benzyl Alcohol, Citric Acid [+/-CI 77891/Titanium Dioxide, CI 15850/Red 7 Lake, CI 77499/Iron Oxides, CI 77491/Iron Oxides, CI 15850/Red 6, CI 73360/Red 30, CI 77492/Iron Oxides, CI 45410/Red 28 Lake, CI 19140/Yellow 5 Lake, CI 15985/Yellow 6, CI 45380/Red 22 Lake, CI 42090/Blue 1 Lake].
Hvað gerir varan fyrir þig?
Punkturinn yfir i-ið: smá raki á augabragði og fallegur litur á leiðinni í brunch. Allt í nettu og ferðavænu hylki sem má fylla á aftur og aftur.
Hér færðu það besta úr báðum heimum. Varaliturinn er blanda af möttu og satíni með flauelsmjúkri áferð, svo þú færð þekju og litstyrk eins og frá öflugum varalit, en án klístraðrar tilfinningar. Hvorki of glansandi né of mattur.
Hann fæst nú í 20 fallegum litum sem henta öllum húðlitum og inniheldur Community Fair Trade sheasmjör frá Ghana, sem gefur vörunum jafnan raka yfir daginn. Hann helst léttur, mjúkur, þægilegur og rakagefandi, alveg eins og við viljum hafa hann.
Bættu lit og langvarandi raka við brosið þitt og hafðu engar áhyggjur af því að hann fari neitt. Eftir eina notkun:
- 88% sögðu að varaliturinn gæfi góða þekju og litstyrk strax í fyrstu stroku
- 90% sögðu að hann væri léttur á vörunum og þægilegur
- 73% fannst liturinn endast í allt að 6 klukkustundir
Við viljum að allir finni sinn lit. Þess vegna prófuðum við varalitinn á fjölbreyttum hópi 201 einstaklings af ólíkum kynjum og aldri, með ólíkar húðgerðir og sex mismunandi húðliti á Fitzpatrick-skalanum, til að tryggja að hann virki vel fyrir alla.
Og eitt enn til að brosa yfir: allar umbúðirnar má endurvinna, þar sem aðstæður til endurvinnslu leyfa. Vegna smæðar er best að endurvinna áfyllinguna og lokið saman. Ekki taka miðann af öskjunni fyrir endurvinnslu, þau eru endurunnin saman.
- Hálfmött áferð, mitt á milli matts og glans
- Liturinn endist í 6 klst.
- Raki í 12 klukkustundir
- Léttur og þægilegur
- 80% innihaldsefna af náttúrulegum uppruna
- Vottað af The Vegan Society
- Inniheldur Community Fair Trade sheasmjör frá Ghana
- Hentar öllum húðgerðum og er prófaður af húðlæknum
Svona notarðu vöruna
- Fáðu þér Peptalk Refillable Case til að geyma áfyllingarnar þínar um ókomna tíð.
- Taktu áfyllinguna úr öskjunni.
- Fjarlægðu endurvinnanlegu rykhlífina áður en þú setur varalitinn í hylkið.
- Smelltu áfyllingunni í botninn á hylkinu þar til þú heyrir smell.
- Berðu beint á varirnar og renndu varalitnum mjúklega yfir þær. Stoppaðu hér fyrir náttúrulegt útlit, eða bættu við fleiri lögum fyrir sterkari lit.
- Þegar þú vilt taka áfyllinguna úr skaltu snúa henni réttsælis og draga hana út.
Sendingarmáti
Ókeypis heimsending ef pantað er fyrir yfir 10.000kr.
Hægt er að fá heimsent með Dropp eða Íslandspósti. Ef pantað er fyrir kl 14:00, gerum við okkar besta til að koma pöntunni út samdægurs.
Einnig er hægt að sækja í verslunum okkar í Kringlu og Smáralind.
30-daga skilafrestur - sendu okkur vöruna til baka eða komdu við hjá okkur.
- Viðskiptavinir keyptu líka
- Nýlega skoðað