Pink Grapefruit Cleansing Face & Body Bar
Sápustykki fyrir andlit og líkama. Frísklegur sítrusilmur. Vegan
Nýtt og endurbætt sápustykki fyrir andlit og líkama, með skörpum og sætum ilmi af nýskornu, safaríku greipaldini. Ríkulegt og kremkennt löðrið hreinsar og frískar húðina og stykkið má nota frá toppi til táar.
- Sápustykki fyrir andlit og líkama
- Hentar öllum húðgerðum
- 90% innihaldsefna af náttúrulegum uppruna
- Vottað af The Vegan Society
- Prófað af húðlæknum
- Community Fair Trade sheasmjör frá Ghana
- Endurvinnanlegar pappírsumbúðir*
*Þar sem aðstæður til endurvinnslu leyfa.
Skráðu þig í klúbbinn og fáðu 15% afslátt
Ókeypis heimsending fyrir pantanir yfir 10.000kr.
Aldrei prófað á dýrum
Skilafrestur á jólagjöfum er framlengdur til áramóta.
Greipaldinfræolía
Við pressum greipaldinfræ og fáum ilmkjarnaolíu sem gefur vörunum frískandi, sætan sítrusilm.

Community Fair Trade sheasmjör
Frá samstarfsaðilum okkar í Ghana. Sheasmjör er ríkt af fitu og með þétta, mjúka áferð sem gefur húðinni djúpan og góðan raka.

Hvað gerir varan fyrir þig?
Mjúk, slétt og fersk húð með nýju og endurbættu Pink Grapefruit Cleansing Face & Body Bar, sápustykki með háu hlutfalli innihaldsefna af náttúrulegum uppruna.
Fjölhæft sápustykkið hreinsar þig frá toppi til táar og gefur andliti og líkama gott dekur. Ríkuleg og mjúk froðan skilur allar húðgerðir eftir hreinar og ferskar. Skarpur og sætur ilmurinn er eins og að skera stórt og safaríkt greipaldin í tvennt og þú ilmar af ferskum sítrus.
Það er vottað af The Vegan Society, gert úr 90% innihaldsefnum af náttúrulegum uppruna og inniheldur handunnið Community Fair Trade sheasmjör frá Ghana. Frá árinu 1994 hafa viðskiptin okkar hjálpað yfir 600 konum að verða fjárhagslega sjálfstæðar. Sápustykkið kemur í pappírsumbúðum sem eru 100% endurvinnanlegar*. Einfaldlega dásamlegt.
*Sápuumbúðirnar okkar má nú endurvinna víðar en áður, þar sem aðstæður til endurvinnslu leyfa.
- Hreinsistykki fyrir andlit og líkama
- Fyrir allar húðgerðir
- Frískandi og hreinsandi
- 90% innihaldsefna af náttúrulegum uppruna
- Vottað af The Vegan Society
- Prófað af húðlæknum
Svona notarðu vöruna
- Bleyttu sápustykkið undir vatni.
- Nuddaðu þar til það freyðir.
- Berðu froðuna á raka húðina.
- Skolaðu af.
Sendingarmáti
Ókeypis heimsending ef pantað er fyrir yfir 10.000kr.
Hægt er að fá heimsent með Dropp eða Íslandspósti. Ef pantað er fyrir kl 14:00, gerum við okkar besta til að koma pöntunni út samdægurs.
Einnig er hægt að sækja í verslunum okkar í Kringlu og Smáralind.
30-daga skilafrestur - sendu okkur vöruna til baka eða komdu við hjá okkur.
- Viðskiptavinir keyptu líka
- Nýlega skoðað