Shave Duo
Gjafasett. Fyrir mjúkan og þægilegan rakstur. Vegan
Gefðu honum hreinan, mjúkan og þægilegan rakstur. Í Shave Duo eru Shaving Cream og Post-Shave Water-Gel úr Maca Root & Aloe línunni.
Skráðu þig í klúbbinn og fáðu 15% afslátt
Ókeypis heimsending fyrir pantanir yfir 10.000kr.
Aldrei prófað á dýrum
Skilafrestur á jólagjöfum er framlengdur til áramóta.
Innihaldsefni
Vinsamlega skoðið hverja vöru fyrir sig til að nálgast frekari upplýsingar um innihaldsefni.
Hvað gerir varan fyrir þig?
Jólagjöf sem lyftir rakstrinum upp á næsta stig.
Shaving Cream með maca rót mýkir skeggið vel. Hvort sem það á að kveðja alskeggið eða þriggja daga broddana myndar kremið þykka, mjúka froðu sem undirbýr húðina og mýkir hárin fyrir sléttan rakstur.
Post-Shave Water-Gel róar og nærir viðkvæma húð og hjálpar til við að koma í veg fyrir ertingu eftir rakstur. Gelið er létt og fer hratt inn, svo húðin verður þægilegri og lítur betur út.
Gjafasettið inniheldur:
- Maca Root & Aloe Softening Shaving Cream 200ml
- Maca Root & Aloe Post-Shave Water-Gel 160ml
Svona notarðu vöruna
- Berðu Shaving Cream á blautt skeggið með fingurgómunum eða rakbursta.
- Dreifðu jafnt yfir andlitið svo úr verði þykkt og mjúkt lag.
- Rakaðu og skolaðu svo andlitið með vatni.
- Klappaðu Post-Shave Water-Gel létt á hreina, þurra húðina þar til það hefur farið inn.
Shaving Cream: Ef varan berst í augu, skolaðu strax og vel.
Post-Shave Water-Gel: Forðist augnsvæðið. Ef varan berst í augu, skolaðu strax og vel.
Sendingarmáti
Ókeypis heimsending ef pantað er fyrir yfir 10.000kr.
Hægt er að fá heimsent með Dropp eða Íslandspósti. Ef pantað er fyrir kl 14:00, gerum við okkar besta til að koma pöntunni út samdægurs.
Einnig er hægt að sækja í verslunum okkar í Kringlu og Smáralind.
30-daga skilafrestur - sendu okkur vöruna til baka eða komdu við hjá okkur.
- Viðskiptavinir keyptu líka
- Nýlega skoðað