Tea Tree Daily Solution
Vinnur á roða og ójöfnum í húð. Hreinsandi. Vegan
Bólur fylgja okkur flestum einhvern tímann á lífsleiðinni og þótt það sé fullkomlega eðlilegt að þær birtist endrum og eins, þá valda þær mörgum vanlíðan og óþægindum og því er gott að geta gripið til einhverra verkfæra, eins og Tea Tree línunnar okkar, til að minnka og jafnvel losna alveg við bólur. Hér er á ferðinni Serum-dropi sem, með reglulegri notkun, skilar hreinni og mattari húð ásamt því að vinna á roða og ójöfnum í húð. Minnkar myndun á bólum og fílapenslum. Notist undir rakakrem kvölds og morgna. Gengur hratt inn í húðina og inniheldur bæði Community Fair Trade Tea Tree olíu sem er handunnin og ræktuð án skordýraeiturs og salicylic sýru sem hjálpar húðinni að losa sig við dauðar húðfrumur og umfram olíu. Á 4 vikum verður húðin:
- Hreinni
- Mýkri
- Heilbrigðari
- Mattari
- Dregur úr roða og pirring í húð
- Inniheldur tea tree olíu frá Kenía
- Bakteríudrepandi
- Vegan
Skráðu þig í klúbbinn og fáðu 15% afslátt
Ókeypis heimsending fyrir pantanir yfir 10.000kr.
Aldrei prófað á dýrum
Skilafrestur á jólagjöfum er framlengdur til áramóta.
Community Fair Trade tea tree olía
Eitt öflugasta hreinsandi hráefni náttúrunnar. Samstarfsaðilar okkar í Kenía rækta tréð lífrænt í smáum stíl, handtína laufin og nota ekkert skordýraeitur svo krafturinn haldist sem mestur.

Salisýlsýra
Beta hýdroxýsýra (BHA) sem hreinsar svitaholurnar djúpt með því að leysa upp umframfitu og fjarlægja dauðar húðfrumur. Hún dregur úr bólum, jafnar áferðina og róar ertingu svo húðin verður hreinni og í betra jafnvægi.

Hvað gerir varan fyrir þig?
Öflug en mild og létt formúla sem hreinsar húðina og jafnar ásýnd hrjúfrar og ójafnrar húðáferðar.
- Með reglulegri notkun dregur hún sjáanlega úr bólum
- Gengur hratt inn og skilur húðina eftir frísklega og raka, án klístraðrar filmu
- Inniheldur hreinsandi Community Fair Trade tea tree olíu og salicylic sýru
- Ferskur tea tree ilmur
- Hentar olíukenndri húð með bólum
- Prófað af húðlæknum
- Stíflar ekki svitaholur
Svona notarðu vöruna
- Byrjaðu á Tea Tree Skin Clearing Facial Wash.
- Fylgdu eftir með Tea Tree Skin Clearing Mattifying Toner.
- Endaðu á Tea Tree Daily Solution: settu 2 til 3 dropa á fingurgómana og nuddaðu mjúklega inn í húðina.
- Viltu vinna enn betur á bólum? Berðu Tea Tree Oil á yfir daginn eða settu Tea Tree Rapid Treatment Gel á fyrir svefninn.
Sendingarmáti
Ókeypis heimsending ef pantað er fyrir yfir 10.000kr.
Hægt er að fá heimsent með Dropp eða Íslandspósti. Ef pantað er fyrir kl 14:00, gerum við okkar besta til að koma pöntunni út samdægurs.
Einnig er hægt að sækja í verslunum okkar í Kringlu og Smáralind.
30-daga skilafrestur - sendu okkur vöruna til baka eða komdu við hjá okkur.
- Viðskiptavinir keyptu líka
- Nýlega skoðað