Vitamin E Moisture Gel Cream
Fyrir blandaða húð. Hentar húð með rósroða. Vegan
Létt, olíulaust, gelkennt rakakrem fyrir venjulega og blandaða húð. Inniheldur E vítamínríkt hindberja extract og hyaluronic sýru, tvö innihaldsefni þekkt fyrir rakagjöf og hæfileika til að halda húðinni vel vökvaðri. Kemur í endurvinnanlegum* glerumbúðum sem eru úr 40% endurunnu gleri, með áloki, sem einnig má endurvinna*.
- Rakagjöf í 48klst
- Ferskur hindberjailmur
- Olíulaust
- Hentar venjulegri og blandaðri húð
- Inniheldur E vítamínríkt hindberja extract
- Frískandi ilmur og áferð
- Rakakrem fyrir andlit
- Létt gelkennd áferð
- Reynist vel við rósroða
*Þar sem aðstæður til endurvinnslu leyfa.
Skráðu þig í klúbbinn og fáðu 15% afslátt
Ókeypis heimsending fyrir pantanir yfir 10.000kr.
Aldrei prófað á dýrum
Skilafrestur á jólagjöfum er framlengdur til áramóta.
E-vítamín
E-vítamín, eða tókóferól, er verndandi vítamín sem er vel þekkt í húðumhirðu fyrir að verja húðina og gefa henni raka.

Hýalúrónsýra
Hýalúrónsýra af náttúrulegum uppruna er þekkt fyrir einstaka rakagjöf. Hún getur bundið allt að þúsundfalda þyngd sína af vatni og heldur húðinni þéttri, mjúkri og sléttri.

Hindberjafræolía
Uppspretta E-vítamíns. Olían er unnin úr afgöngum frá safaframleiðslu, í samstarfi við birgja sem vinna að því að minnka matarsóun.

Hvað gerir varan fyrir þig?
Ofurlétt rakakrem sem gengur hratt inn í húðina og er klínískt sannað að það gefur raka í 48 klukkustundir. Gelkennd áferðin er svo létt að þú finnur varla fyrir henni og fyllir húðina af raka.
- Endurnýjar nauðsynlegar rakabirgðir húðarinnar
- Gefur húðinni mattari ásýnd og T-svæðið virðist minna olíukennt
- Inniheldur hyaluronic sýru af náttúrulegum uppruna, E-vítamín og hindberjafræolíu
- Með notalega Vitamin E ilminum okkar
- Hentar blandaðri húð
- Prófað af húðlæknum
Svona notarðu vöruna
- Berðu rakakrem á stærð við möndlu á hreina húð og forðastu augnsvæðið.
- Nuddaðu því mjúklega inn í húðina. Prófaðu að nudda upp á við fyrir náttúrulega lyftingu.
- Viltu heila rútínu? Byrjaðu á Vitamin E Gentle Facial Wash og Vitamin E Moisturising Toner til að fjarlægja síðustu óhreinindin og undirbúa húðina áður en þú berð á þig rakakremið.
- Ljúktu með góðu lagi af Skin Defence SPF og dagurinn má byrja.
Sendingarmáti
Ókeypis heimsending ef pantað er fyrir yfir 10.000kr.
Hægt er að fá heimsent með Dropp eða Íslandspósti. Ef pantað er fyrir kl 14:00, gerum við okkar besta til að koma pöntunni út samdægurs.
Einnig er hægt að sækja í verslunum okkar í Kringlu og Smáralind.
30-daga skilafrestur - sendu okkur vöruna til baka eða komdu við hjá okkur.
- Viðskiptavinir keyptu líka
- Nýlega skoðað