White Musk® Eau De Toilette
Ferskur musk ilmur. Cruelty-free musk. Vegan
Þessi ilmur er einn af vinsælustu ilmum okkar. Eau de toilette er mild formúla með hreinum cruelty-free musk ilmi. Fullkominn og léttur blómlegur ilmur. Við mælum með sturtusápu, húðnæringu og spreyi í lokin til að byggja upp ilm sem endist lengur. Um 40% af gleri í flösku er endurunnið gler.
- Eau de toilette
- Vinsæli White Musk® ilmurinn
- Cruelty-free musk
- Létt formúla
- Vegan
Skráðu þig í klúbbinn og fáðu 15% afslátt
Ókeypis heimsending fyrir pantanir yfir 10.000kr.
Aldrei prófað á dýrum
Skilafrestur á jólagjöfum er framlengdur til áramóta.
Musk ilmur
Sannkallaður leiðtogi í heimi ilmanna. Musk er munúðarfullur og umvefjandi, sætur, púðurkenndur og hreinn.

Dalalilja
Eitt ilmríkasta blóm vorsins. Léttur, hvítur blómailmur með ferskum grænum keim og vatnskenndum undirtónum.

Jasmín
Láttu jasmínið heilla þig. Ferskur, hvítur blómailmur með grænum tónum.

Hvað gerir varan fyrir þig?
Einn af okkar klassískustu ilmum. Þetta fínlega og munúðarfulla Eau de Toilette ilmar ferskt og hreint og blandast þínum eigin ilmi svo einstakur karakter þess kemur í ljós.
White Musk® Eau de Toilette er geislandi og ótvíræður ilmur sem gefur þér kraft til að tjá þig eins og þú ert. Hann er gerður úr blöndu af loftkenndum og hreinum aldehýðtónum, ferskri og blómlegri dalalilju, púðurkenndri og djarfri jasmínu og auðvitað munúðarfullum og notalegum white musk.
Ef þú leitar að einkennisilmi er þessi endingargóði ilmur sígildur af góðri ástæðu.
- Eau de Toilette fyrir öll kyn
- Hreinn, ferskur og blómlegur musk ilmur
- Tónar af hreinum aldehýðum, dalalilju, jasmínu og white musk
- Gerður með cruelty-free musk
Svona notarðu vöruna
- Spreyjaðu White Musk® Eau de Toilette eins ríkulega og þú vilt á hálsinn og púlspunktana.
- Viltu að ferski ilmurinn endist enn lengur? Notaðu hann með White Musk® Body Lotion, White Musk® Shower Gel eða jafnvel White Musk® Deodorant.
Sendingarmáti
Ókeypis heimsending ef pantað er fyrir yfir 10.000kr.
Hægt er að fá heimsent með Dropp eða Íslandspósti. Ef pantað er fyrir kl 14:00, gerum við okkar besta til að koma pöntunni út samdægurs.
Einnig er hægt að sækja í verslunum okkar í Kringlu og Smáralind.
30-daga skilafrestur - sendu okkur vöruna til baka eða komdu við hjá okkur.
- Viðskiptavinir keyptu líka
- Nýlega skoðað