Nýtt og endurbætt
Hemp Body Butter
Body Butter fyrir mjög þurra húð. Vegan
Hemp Body Butter verndar og nærir þurra húð. Inniheldur hampolíu og Community Fair Trade sheasmjör frá Ghana og Babassu olíu frá Brasilíu, kraftmikil blanda fyrir þau okkar sem eru að kljást við mikinn þurrk í húðinni. Mýkir og gefur raka og næringu í allt að 48 klst. Húðin hreinlega ljómar af heilbrigði. Kemur í endurvinnanlegum* umbúðum framleiddum úr 100% endurunnu plasti og áli, plastið kemur að hluta til úr Community Fair Trade verkefninu okkar á Indlandi.
- Hentar vel fyrir ofurþurra húð
- Verndar og nærir húðina í allt að 48 klst
- Mildur og góður ilmur
- Vegan
*Þar sem aðstæður til endurvinnslu leyfa.
Skráðu þig í klúbbinn og fáðu 15% afslátt
Ókeypis heimsending fyrir pantanir yfir 10.000kr.
Aldrei prófað á dýrum
Skilafrestur á jólagjöfum er framlengdur til áramóta.
Hampfræolía
Við höfum notað hamp síðan 1998. Hampfræolía gefur mikinn raka og inniheldur nauðsynlegar fitusýrur eins og omega-3 og omega-6, auk A- og E-vítamíns. Hampurinn er líka náttúrulega varinn gegn meindýrum svo bændurnir þurfa ekkert skordýraeitur.

Community Fair Trade sheasmjör
Frá samstarfsaðilum okkar í Ghana. Sheasmjör er ríkt af fitu og með þétta, mjúka áferð sem gefur húðinni djúpan og góðan raka.

Býflugnavax
Náttúrulegt hráefni sem nærir þurrar hendur ríkulega og styður við náttúrulegt varnarlag húðarinnar svo hún haldi betur í rakann.

Hvað gerir varan fyrir þig?
Sama góða áferðin og þú þekkir og elskar. Fáðu þér vel af Hemp Body Butter-inu og leyfðu líkamanum að njóta.
Kraftmikil og nærandi formúlan með jarðbundnum keim bráðnar inn í húðina og gefur raka í allt að 48 klukkustundir, en er samt létt á húðinni. Þykk og mjúk áferðin fer eins og í draumi yfir þurrustu svæðin, sem verða mjúk og haldast þannig lengi.
Dekur fyrir skynfærin frá fyrstu snertingu, sem breytir daglegri rútínu í litla lúxusstund.
- 91% sögðu að áferðin virtist ríkuleg og mjúk við fyrstu sýn*
- 88% sögðu að húðin væri einstaklega vel nærð eftir eina notkun*
- 89% sögðu að þurr og strekkt húð hefði strax orðið þægilegri*
*Notendakönnun meðal 107 þátttakenda á aldrinum 18 til 65 ára (90% konur, 10% karlar) í tvær vikur.
Svona notarðu vöruna
- Taktu vel af Body Butter-inu með fingrunum.
- Berðu það ríkulega á allan líkamann.
- Gefðu þurrum svæðum eins og hnjám, olnbogum og fótum smá auka athygli.
- Leyfðu því að ganga inn í húðina í nokkrar mínútur áður en þú klæðir þig.
- Notaðu einu sinni á dag fyrir mjúka og vel nærða húð.
Ekki ætlað fyrir andlit.
Sendingarmáti
Ókeypis heimsending ef pantað er fyrir yfir 10.000kr.
Hægt er að fá heimsent með Dropp eða Íslandspósti. Ef pantað er fyrir kl 14:00, gerum við okkar besta til að koma pöntunni út samdægurs.
Einnig er hægt að sækja í verslunum okkar í Kringlu og Smáralind.
30-daga skilafrestur - sendu okkur vöruna til baka eða komdu við hjá okkur.
- Viðskiptavinir keyptu líka
- Nýlega skoðað