Nýtt og endurbætt
Strawberry Body Butter
Fyrir allar húðgerðir. Gefur raka í allt að 72 klst. Vegan
Mýkjandi og nærandi body butter með ferskum og sætum jarðarberjailmi. Inniheldur olíu unna úr fræjum jarðarbersins, Community Fair Trade sheasmjör frá Ghana og Community Fair Trade sesamolíu frá Nigaragua. Mýkir og nærir húðina í allt að 72 klst. Kemur í endurvinnanlegum* umbúðum, dósin sjálf er úr 100% endurunnu plasti, sem kemur að hluta til úr Community Fair Trade plastverkefninu okkar á Indlandi, og lokið er úr endurvinnanlegu* áli.
- Body butter
- Nærir húðina og mýkir
- Hentar vel þurri húð
- Gefur góðan raka í 72 tíma
- Gengur hratt inn í húðina
- Sætur jarðarberjailmur
- Inniheldur kaldpressaða olíu úr jarðarberjafræjum
- Umbúðir úr áli og endurunnu plasti
- Vegan
*Þar sem aðstæður til endurvinnslu leyfa.
Skráðu þig í klúbbinn og fáðu 15% afslátt
Ókeypis heimsending fyrir pantanir yfir 10.000kr.
Aldrei prófað á dýrum
Skilafrestur á jólagjöfum er framlengdur til áramóta.
Jarðarberjafræolía og jarðarberjasafi
Við nýtum það besta úr jarðarberjunum í olíu og seyði fyrir vörurnar okkar.

Community Fair Trade sheasmjör
Frá samstarfsaðilum okkar í Ghana. Sheasmjör er ríkt af fitu og með þétta, mjúka áferð sem gefur húðinni djúpan og góðan raka.

Hvað gerir varan fyrir þig?
Fáðu þér vel af Strawberry Body Butter-inu og leyfðu líkamanum að njóta dekursins sem hann á skilið.
Ríkuleg og nærandi formúlan með sætum ilmi bráðnar auðveldlega inn í húðina og gefur raka í allt að 72 klukkustundir, án þess að húðin verði þung. Kremkennd áferðin rennur mjúklega yfir þurra húð og umvefur hana mýkt sem endist lengi.
Dekur fyrir skynfærin frá fyrstu snertingu, sem breytir daglegri rútínu í litla lúxusstund.
- 97% sögðu að varan dreifðist auðveldlega yfir húðina án þess að draga hana*
- 95% sögðu húðina djúpnærða eftir eina notkun*
- 93% sögðu áferð húðarinnar sléttari ásýndar eftir fyrstu notkun*
*Notendakönnun meðal 108 þátttakenda á aldrinum 18 til 65 ára (90% konur, 10% karlar) í tvær vikur.
Svona notarðu vöruna
- Taktu vel af Body Butter-inu með fingrunum.
- Berðu það ríkulega á allan líkamann.
- Gefðu þurrum svæðum eins og hnjám, olnbogum og fótum smá auka athygli.
- Leyfðu því að ganga inn í húðina í nokkrar mínútur áður en þú klæðir þig.
- Notaðu einu sinni á dag fyrir mjúka og vel nærða húð.
Ekki ætlað fyrir andlit.
Sendingarmáti
Ókeypis heimsending ef pantað er fyrir yfir 10.000kr.
Hægt er að fá heimsent með Dropp eða Íslandspósti. Ef pantað er fyrir kl 14:00, gerum við okkar besta til að koma pöntunni út samdægurs.
Einnig er hægt að sækja í verslunum okkar í Kringlu og Smáralind.
30-daga skilafrestur - sendu okkur vöruna til baka eða komdu við hjá okkur.
- Viðskiptavinir keyptu líka
- Nýlega skoðað