Nýtt og endurbætt
Coconut Body Butter
Fyrir mjög þurra húð. 72 klst. raki. Vegan
Suðrænt dekur fyrir mjög þurra húð. Besta Coconut Body Butter-ið okkar til þessa er þykkt og rjómakennt, gengur vel inn í húðina og skilur hana eftir mjúka, slétta og vel nærða í allt að 72 klst. Húðin fær fallegan, náttúrulegan ljóma og ilmurinn er hlýr og suðrænn með mildum hnetukeim.
Inniheldur lífræna, kaldpressaða kókosolíu frá Samóaeyjum, handunnið sheasmjör frá Ghana og lífræna babassuolíu frá Brasilíu, allt Community Fair Trade hráefni. 96% innihaldsefna eru af náttúrulegum uppruna (samkvæmt ISO 16128).
Berðu á eins ríkulega og húðin kallar á. Það klístrast ekki og skilur ekki eftir sig fituga filmu. Dósin er úr 100% endurunnu plasti, sem kemur að hluta til úr Community Fair Trade plastverkefninu okkar á Indlandi, og lokið er úr áli. Umbúðirnar má endurvinna*.
- Body Butter
- Hentar vel fyrir mjög þurra húð
- Gefur raka í allt að 72 klst.
- Gefur húðinni náttúrulegan ljóma
- Hlýr, suðrænn kókosilmur með hnetukeim
- Klístrast ekki
- Prófað af húðlæknum
- Vegan
*Þar sem aðstæður til endurvinnslu leyfa.
Skráðu þig í klúbbinn og fáðu 15% afslátt
Ókeypis heimsending fyrir pantanir yfir 10.000kr.
Aldrei prófað á dýrum
Skilafrestur á jólagjöfum er framlengdur til áramóta.
Lífræn Community Fair Trade kókosolía
Kókosolía hefur nært húð og hár í aldaraðir. Okkar kemur frá samstarfsaðilum okkar á sólríku Samóaeyjum.

Community Fair Trade sheasmjör
Frá samstarfsaðilum okkar í Ghana. Sheasmjör er ríkt af fitu og með þétta, mjúka áferð sem gefur húðinni djúpan og góðan raka.

Babassuolía
Ein mest rakagefandi olía náttúrunnar. Babassuolían er stútfull af næringu og skilur húðina eftir mjúka og slétta.

Hvað gerir varan fyrir þig?
Fáðu þér vel af Coconut Body Butter-inu og gefðu líkamanum dekrið sem hann á skilið.
Ríkuleg og nærandi formúlan með mildum hnetukeim bráðnar inn í húðina og gefur raka í allt að 72 klukkustundir, án þess að skilja eftir fitukennda áferð. Þurr húð verður mjúk og slétt og helst þannig lengi.
Dekur fyrir skynfærin frá fyrstu snertingu, sem breytir daglegri rútínu í litla lúxusstund.
- 98% sögðu að áferðin virtist ríkuleg og mjúk við fyrstu sýn*
- 95% sögðu að varan dreifðist auðveldlega yfir húðina án þess að toga í hana*
- 94% sögðu að húðin fyndi strax fyrir létti frá þurrkinum*
*Notendakönnun meðal 109 þátttakenda á aldrinum 18 til 65 ára (90% konur, 10% karlar) í tvær vikur.
Svona notarðu vöruna
- Taktu vel af Body Butter-inu með fingrunum.
- Berðu það ríkulega á allan líkamann.
- Gefðu þurrum svæðum eins og hnjám, olnbogum og fótum smá auka athygli.
- Leyfðu því að ganga inn í húðina í nokkrar mínútur áður en þú klæðir þig.
- Notaðu einu sinni á dag fyrir mjúka og vel nærða húð.
Ekki ætlað fyrir andlit.
Sendingarmáti
Ókeypis heimsending ef pantað er fyrir yfir 10.000kr.
Hægt er að fá heimsent með Dropp eða Íslandspósti. Ef pantað er fyrir kl 14:00, gerum við okkar besta til að koma pöntunni út samdægurs.
Einnig er hægt að sækja í verslunum okkar í Kringlu og Smáralind.
30-daga skilafrestur - sendu okkur vöruna til baka eða komdu við hjá okkur.
- Viðskiptavinir keyptu líka
- Nýlega skoðað