Vanilla Body Butter
Fyrir þurra húð. 96 klst. raki. Vegan
Ríkulegt og mjúkt body butter sem bráðnar inn í húðina og umvefur hana hlýjum vanilluilmi. Húðin verður strax mýkri, sléttari og vel nærð, án þess að verða feit viðkomu. Ilmurinn opnast með safaríkri nashi-peru og fersku kókosvatni, í hjartanu er ríkuleg vanilla frá Madagaskar með rjómakenndum mjólkurtónum, og undirtónninn er hlýr með vanillu, sandalviði og mjúkum moskus.
- Gefur raka í 96 klst.
- Hentar vel fyrir þurra húð
- Bráðnar inn í húðina og skilur hana eftir mjúka og slétta
- Hlýr og sætur vanilluilmur
- Með sheasmjöri og kakósmjöri
- Vegan
Þetta sögðu notendur
- 93% segja húðina djúpnærða
- 90% segja húðina varða gegn þurrki allan daginn
- 90% sáu húðina líta heilbrigðari út eftir notkun
Notendakönnun meðal 106 þátttakenda á aldrinum 18–45 ára yfir tveggja vikna tímabil.
Skráðu þig í klúbbinn og fáðu 15% afslátt
Ókeypis heimsending fyrir pantanir yfir 10.000kr.
Aldrei prófað á dýrum
Skilafrestur á jólagjöfum er framlengdur til áramóta.
Community Fair Trade sheasmjör
Frá samstarfsaðilum okkar í Ghana. Sheasmjör er ríkt af fitu og með þétta, mjúka áferð sem gefur húðinni djúpan og góðan raka.

Bourbon vanilla
Hágæða vanilluseyði sem fangar ekta ilm vanillubaunarinnar. Unnið úr vanillubelgjum frá Madagaskar sem eru fengnir á ábyrgan hátt.

Hvað gerir varan fyrir þig?
Gefðu húðinni ríkulegt rakadekur með Vanilla Body Butter.
Body Butter-ið bráðnar fallega inn í húðina og gefur raka í allt að 96 klukkustundir, án þess að húðin verði feit. Hún verður samstundis mýkri, sléttari og vel nærð.
Ilmurinn opnast með safaríkri nashi-peru og fersku kókosvatni, lyftur upp með orkídeutónum. Í hjartanu blandast ríkuleg vanilla frá Madagaskar við endurnýtt vanillín úr hrísgrjónum, rjómakennda mjólk og heliotrope, og saman skapa þau mjúka hlýju sem umvefur þig. Í grunninum situr munúðarfull blanda af hreinum vanillukjarna, sandalviði og mjúkum moskus sem leggst að húðinni og endist lengi.
Hver notkun er hlý og notaleg stund.
- 93% sögðu húðina djúpnærða*
- 90% sögðu húðina varða gegn þurrki allan daginn*
- 90% sögðu húðina sjáanlega heilbrigðari eftir notkun*
*Notendakönnun meðal 106 þátttakenda á aldrinum 18 til 45 ára (90% konur) í 2 vikur.
Svona notarðu vöruna
- Taktu vel af Body Butter-inu.
- Nuddaðu því inn í þurra húð og leggðu áherslu á grófari svæði.
- Leyfðu því að ganga inn áður en þú klæðir þig.
- Notaðu með Vanilla Fragrance Mist til að byggja upp ilminn í lögum.
- Notaðu daglega fyrir mjúka og vel nærða húð.
Ekki ætlað fyrir andlit.
Sendingarmáti
Ókeypis heimsending ef pantað er fyrir yfir 10.000kr.
Hægt er að fá heimsent með Dropp eða Íslandspósti. Ef pantað er fyrir kl 14:00, gerum við okkar besta til að koma pöntunni út samdægurs.
Einnig er hægt að sækja í verslunum okkar í Kringlu og Smáralind.
30-daga skilafrestur - sendu okkur vöruna til baka eða komdu við hjá okkur.
- Viðskiptavinir keyptu líka
- Nýlega skoðað