Collections
Activist
Activist ilmurinn er mjúkur og hlýr ilmur sem passar þeim vel sem hafa stóran faðm og hlýja sál.
View collectionAllar andlitsvörur
Hugsaðu vel um húðina þína haltu henni vel nærðri og mjúkri allan ársins hring og viðhaltu þannig jafnvægi hennar og náttúrulegri fegurð. Prófaðu til dæmis Aloe Soothing Cream ef húðin þín er mjög viðkvæm og Vitamin E Eye Cream ef farið er að bera á fínum línum á augnsvæðinu.
View collectionAllar fótavörur
Hemp fótakremið okkar er orðið víðfrægt og kemur það ekki á óvart, því það nær að mýkja fætur þeirra allra hörðustu. Prufaðu líka kælandi piparmintulínuna, hún frískar upp á fætur ásamt því að draga úr þrota og þreytuverkjum. Við bjóðum meðal annars upp á skrúbb sem mýkir og hreinsar, krem sem næra og sprey sem kælir.
View collectionAllar gjafir
Frændi og frænka, stóra systir eða litli bróðir, amma eða pabbi... við eigum alls kyns skemmtilegar gjafir sem hitta í mark við ýmiskonar tækifæri og tilefni.
View collectionAllar hárvörur
Við vitum að heilbrigði hársins skiptir flesta miklu máli. Þess vegna höfum við hjá The Body Shop™ hannað fjölbreytta línu náttúrulegra, cruelty free hárvara sem halda hárinu þínu bæði hreinu og hraustlegu.
View collectionAllar líkamsvörur
Líkamsvörurnar okkar halda húðinni hreinni ásamt því að veita henni raka og næringu frá toppi til táar. Krem, sápur og skrúbbar fyrir allar húðgerðir og fjöldi mismunandi ilma fáanlegir.
View collectionAllar líkamsvörur
View collectionallar líkamsvörur
View collectionAllar vörur
View collectionAllar vörur
View collectionAllar vörur
View collectionAllir ilmir
Hvort sem þú leitar að léttu misti til að sveipa þig ilmi eftir sturtu, eða langar í fágaðan spariilm fyrir fínni tilefni þá eigum við úrval spennandi ilma fyrir þig til að velja úr. Svo bjóðum við líka hýbílailmi fyrir brennsluker og fallegar ilmstangir sem gaman er að gefa... eða eiga sjálfur.
View collectionAlmond Milk
Prófaðu þessa mildu vörulínu sem inniheldur möndlumjólk ef þú ert með viðkvæma og ofnæmisgjarna húð. Þessi lína sefar húðina, dregur úr ertingu veitir góðan raka og næringu.
View collectionAloe
Þessi vörulína er án viðbættra rotvarnarefna, ilmefna, litarefna og alkóhóls. Þess vegna hentar hún sérstaklega vel fyrir viðkvæma og ofnæmisgjarna húð. Aloe er þekkt fyrir að róa og sefa viðkvæma, pirraða og rauða húð.
Andlitsfarði
Hvort sem þú ert að fara í vinnuna eða út á lífið og allt þar á milli þá getur fallegur farði gert gæfumuninn. Hjá okkur finnur þú allt til alls þegar kemur að fallegri förðun.
View collection
Andlitshreinsir og toner
Veldu úr okkar fjölbreytta úrvali af hreinsimjólk, freyðandi andlitssápum og augnfarðahreinsi. Ekki gleyma andlitsvatninu til að nota á eftir til að loka svitaholum og undirbúa húðina fyrir gott rakakrem.
View collectionAndlitsvörur
Við bjóðum upp á úrval gjafa sem innihalda okkar vinsælu andlitsvörur. Fallega gjafakassa sem innihalda áhrifaríkar dekurvörur úr Edelweiss, Aloe eða E Vitamin línunum og svo að sjálfsögðu Tea Tree gjafir fyrir unga fólkið.
View collectionArber
Arber herralínan inniheldur hár- og sturtusápu og Eau de Toilette og ilmurinn er hlý og léttkrydduð blanda sem inniheldur sítrusávexti, kóríander og sandalvið.
View collection
Augnkrem
Húðin í kringum augun er mjög þunn og viðkvæm og þarf þess vegna að fara um hana mjög mildum höndum. Við mælum með að ætíð séu notuð krem sérhönnuð fyrir þetta svæði. Skoðaðu vel vörulistann hér fyrir neðan til að finna rétta augnkremið.
View collectionAukahlutir - Förðun
Fullkomnaðu förðunina með cruelty-free burstunum okkar. Við erum stolt af því að nota engin dýrahár í burstana okkar.
View collectionAukahlutir fyrir andlit
Allskyns ómissandi tæki og tól sem hjálpa þér að viðhalda æskuljómanum og hraustlegu útliti á einum stað...
skrúbbar, svampar, plokkarar, nuddtæki, bólujárn, lífrænar bómullarskífur og, margt fleira.
View collectionAukahlutir fyrir hendur
Hjá okkur færðu ýmislegt til að sinna góðri umhirðu handa og nagla. Dekraðu við hendurnar með því að bera á þær góðan handáburð og fara í lífræna bómullarhanska til að halda rakanum að húðinni á meðan þú sefur.
View collection
Aukahlutir í bað og sturtu
Hjá okkur fæst mikið úrval af skrúbbum, burstum og baðhönskum sem gera baðið og sturtuna enn betri. Svo eigum við líka til hinn sívinsæla baðkodda, hárbönd og hanska til að sofa með.... allt svo að þú getir dekrað svolítið við sjálfa/n þig og þá sem þér þykir vænt um.
View collectionBanana
Bananar eru ekki einungis hollir og góðir til átu - þeir eru frábært hráefni í hár-og húðvörur, enda stútfullir af vítamínum, steinefnum og náttúrulegum olíum. Bananahárlínan okkar hentar fyrir allt venjulegt, sem og þurrt hár og þá hefur Banana hármaskinn okkar verið mjög vinsæll síðan hann kom á markaðinn enda nærir hann og mýkir þurrt hár á einkar mildan hátt. Nú er líka til hjá okkur Banana Bath Blend sem er mýkjandi freyðibað fyrir þurra húð.
View collectionBað og líkami
Skoðaðu okkar fjölbreytta úrval tilbúinna gjafa sem innihalda alls kyns spennandi vörur fyrir baðið, sturtuna og kroppinn, eða veldu sjálf/ur innhald í fallegan gjafakassa eða gjafapoka.
View collection
Bestsellers
Best sellers like our Hemp Hand Protector, Coconut Body Butter and Ginger Anti-Dandruff Shampoo have been flying off our shelves and into your homes faster than you can say... bestseller. From products for your hands, skin, lips and hair, you’ll find our most popular beauty must-haves right here. Some of our best products are bestsellers for a reason – don’t just take our word for it! Check out our customer reviews and ratings too.
View collectionBlack Musk
Black Musk er einn af mest spennandi ilmum okkar innan musk línunnar. Blanda af peru, bleikum pipar og vanillu gerir ilminn sætan en jafnframt örlítið kryddaðan. Til að byggja upp ilm sem endist lengur mælum við með sturtusápu, húðnæringu og bodymisti.
View collectionBlue Musk
Blue Musk ilmurinn sem er léttur, frísklegur og viðarkenndur ilmur samsettur úr lavender, bergamot og sandalviði. Mjúkur og þroskaður ilmur sem passar fyrir öll kyn og fæst sem sturtusápa, body mist og ilmvatn.
View collectionBlue Musk Zest
Blue Musk Zest línan er fersk og spennandi unisex lína. Ilmurinn er virkilega frískandi og léttur, samsettur úr sítrus, sítrónugrasi og geraníum blómi. Við bjóðum upp á sturtugel, svitalyktareyði og ilmvatn í þessari línu.
View collectionBlönduð húð
Seaweed línan er hönnuð fyrir þá sem eru með blandaða húð, hjálpar húðinna að ná réttu jafnvægi í olíuframleiðslu og gefur henni matta áferð. Notaðu olíu- og sápulausa Seaweed Cleansing Gel Wash til að losa húðina við óhreinindi og svo Oil Control Gel Cream dagkremið til að gefa henni raka.
View collectionBody Butter
Það ættu allir að geta fundið sér Body Butter við hæfi í The Body Shop. Ótrúlega mýkjandi og nærandi krem á kroppinn sem veita húðinni raka og næringu og ilma unaðslega. Hvort sem þú vilt léttan og sætan ávaxtailm eða mjúkan og seiðandi hnetuilm geturðu öruggleg fundið Body Butter sem passar þér.
View collectionBody Cream
Body Cream kremin okkar eru, eins og nafnið gefur til kynna, undurlétt og mjúk eins og stífþeyttur rjómi. Þau eru með léttari áferð en Body Butter en mýkri og þykkari en venjuleg body lotion. Algjör munaður í krukku.
View collectionBody Lotion
Hjá okkur fæst úrval af léttum og rakagefandi kremum fyrir líkamann sem ganga hratt og auðveldlega inn í húðina, mýkja hana og næra og ilma dásamlega þar að auki. Allir ættu að geti fundið ilm við sitt hæfi því eigum allt frá léttum sítrus- og ávaxtailmum til hlýrra, mjúkra og léttkryddaðra musk- og vanilluilma.
View collectionBody Mists
Bodymist, eða hörundsúði, er vara sem er dásamlega frískandi að grípa, ilmirnir eru léttari og endast skemur á húðinni en Edt eða Edp, enda koma þeir í stærri glösum en ilmvötn. Þú umvefur þig dásamlegri angan sem truflar þó ekki þá sem eru í kringum þig og margir sem þola ekki ilmvötn, t.d. vegna ofnæmis geta vel notað þessa vöru. Skoðaðu mistin okkar hér fyrir neðan, þau koma í alls kyns ilmum, ávaxta, blóma og krydduð, en alltaf mild og frískandi.
View collectionBody Yogurt
Það ættu allir að geta fundið sér Body Yogurt við hæfi í The Body Shop. Létt, mýkjandi og nærandi krem á kroppinn sem veita húðinni raka og næringu og smjúga inn í húðina á augabragði.
View collectionBody Yogurt
View collectionBorn Lippy
Born Lippy gefur þér gljáandi og nærðar varir í sex ómótstæðilegum ilmum.
View collectionBritish Rose
Dásamleg og fjölbreytt húðlína með flauelsmjúkum rósailmi sem unnin er úr lífrænum, handtýndum rósum frá Herefordshire í Bretlandi.
View collectionBronzing
Gefðu húðinni sólarbjarma og hraustlegt yfirbragð á auðveldan hátt, með kremi, dropum eða sólarpúðrinu okkar. Skoðaðu úrvalið hér fyrir neðan.
View collectionBólur og olíurík húð
Við vitum að of olíurík húð og bólur haldast stundum í hendur og því bjóðum við upp á sérhannaða vörulínu til að kljást við slík verkefni. Olíurík húð þarf nefnilega líka raka, eins og aðrar húðgerðir og þar kemur Tea Tree línan sterk inn. Hún hreinsar húðina á mildan hátt og veitir henni einnig þann raka sem hún þarfnast til að ná jafnvægi. Tea Tree olían, Skin Clearing Facial Wash og Tea Tree In-Control Hydrator eru allt vörur sem geta hjálpað til þegar bólurnar banka upp á. Skoðaðu fleiri vörur sem koma að góðu gagni hér fyrir neðan.
View collectionBóndadagur
Það vilja allir láta dekra smá við sig. Fyrir bóndann sem á allt og vantar ekki neitt en þú vilt samt gleðja. Þú getur fundið gjöfina hér fyrir þinn bónda!
Camomile
Róaðu þig niður með kamillulínunni okkar og hreinsaðu burtu farða, augnfarða og óhreinindi af húðinni eftir dagsins önn. Þessi lína hentar vel fyrir viðkvæma húð og augu þar sem Kamillan er þekkt fyrir sína róandi eiginleika. Ásamt því að hreinsa húðina nærir þessi lína hana einng svo húðin verður bæði hrein og mjúk.
View collectionCharcoal
Bambuskolin sem við notum í Charcoal línuna okkar er kröftugt innhaldsefni sem er þekkt fyrir að draga í sig óhreinindi. Í þessari línu bjóðum við upp á andlitshreinsi, andlitsmaska og svo húðskrúbb - eða Night Peel, sem vinnur yfir nóttina. Andlitsmaskinn hefur verið okkar vinsælasti síðustu ár.
View collectionChoice
Choice línan er hönnuð til þess að bergmála og ýta undir þær tilfinningar og stemmingu sem þú ert að upplifa eða vilt kalla fram hverju sinni; gleði, ró, frelsi, lífleika eða kannski uppreisn. Tjáðu þig í gegnum ilm... með ilmandi sturtusápu, húðnæringu, ilmolíu eða body misti.
View collectionCoconut
Ein vinsælasta vörulína The Body Shop™. Allt frá sápum og hörundsskrúbb yfir í húðnæringu og Body Mist. Dekraðu við hörundið með vörum úr þessari dásamlegu línu. Allar vörur í kókóslínunni okkar innihalda einstaklega mýkjandi, lífræna, kaldpressaða Community Trade kókosolíu frá Samóaeyjum í Pólýnesíu. Ilmurinn minnir á suðræna paradís.... enda kemur olían frá einni slíkri.
View collectionDagkrem og serum
Við bjóðum upp á mjög fjölbreyttar andlitsvörulínur og eigum andlitskrem og serum eða olíur sem henta öllum húðgerðum. Aloe Vera línan okkar er laus við öll ilm- og rotvarnarefni og hentar vel þeim sem eru með mjög viðkvæma og ofnæmisgjarna húð, Edelweiss línan ræðst gegn merkjum fyrstu merkjum öldrunar, verndar húðina fyrir mengunaráhrifum og styrkir og Seaweed línan hentar vel fyrir þá sem eru með blandaða húð. Skoðaðu úrvalið og finndu þá línu sem passar fyrir þig.
View collectionDewberry
Dewberry-línan frá The Body Shop var ein af vinsælustu ilmseríunum á 90’s og 2000’s, þekkt fyrir safaríkan berjailm sem blandaðist mjúklega við blóma- og viðartóna. Ilmurinn var bæði ferskur og sætur, með léttum musk-undirtón sem gerði hann einstaklega notalegan og daglegan.
View collectionEau de Parfum
Eau de Parfum ilmvötnin hafa dýpri tóna og endast lengur en hefðbundin ilmvötn og Full Flowers línan er okkar nýjasta ilmvatnslína, lína sem við erum ákaflega stolt af enda ákaflega vandaðir og fágaðir ilmir. White Musk ilmurinn er okkar vinsælasti ilmur frá upphafi, dásamlega mjúkur og cruelty free, musk ilmur. Black Musk ilmurinn er þó ekki síðri, spennandi ilmur samsettur úr peru, pipar og bergamot og hentar vel þeim sem vilja hlýjan, léttkryddaðan ilm.
View collectionEau de Toilette
Við eigum Eau de Toilette ilmi í miklu úrvali. Kryddaða, létta, seiðandi, ávaxtaríka, musk, herra og dömuilmi. Kíktu á úrvalið.
View collectionEdelweiss
Edelweiss línan vinnur á fyrstu ummerkjum öldrunar. Hún styrkir, mýkir, eykur teygjanleika og verndar húðina fyrir mengunaráhrifum með því að nýta stofnfrumur og seyði úr alparósinni (Edelweiss), plöntu sem er þekkt fyrir endurnýjunarhæfileika sína og hefur 43% meiri andoxunarhæfni en hið vinsæla innihaldsefni, Retinol. Edelweiss línan örvar nýmyndun frumna í húðinni svo að fínar línur verða minna sjáanlegar og húðin verður fyllri og áferðarfallegri.
View collection
For Men Skincare
For Men Maca Root línan er húðumhirðulína sérstaklega ætluð herrum. Hún inniheldur rakakrem og raksápur, andlitshreinsi og svitalyktareyði og hefur mildan og frísklegan ilm.
View collectionFrosted Cranberry
View collectionFull Flowers
Full Flowers ilmvatnslínan inniheldur fimm vandaða og fágaða, unisex ilmi. Þeir eru marglaga, enda samsettir úr blómum, laufum og stilkum blómanna sem þeir eru kenndir við, ásamt ýmiskonar öðru góðgæti sem gefur hverjum ilmi sinn einstaka blæ.
View collectionFyrir hana
Mamma, systir, frænka, besta vinkonan, kærastan eða eiginkonan eina sanna. Skiptir ekki máli, það er ekkert flókið að finna gjöf hér sem hittir í mark hjá þinni konu. Kíktu á úrvalið hér fyrir neðan.
View collectionFyrir hann
Pabbi, bróðir, frændi, besti vinur, kærasti eða eiginmaðurinn... skiptir ekki máli, það er ekkert flókið að finna gjöf hér sem hittir í mark hjá þínum manni. Skoðaðu úrvalið hér fyrir neðan.
View collection
Fyrir unga fólkið
Frændi og frænka, stóra systir eða litli bróðir, við eigum alls kyns skemmtilegar og gagnlegar gjafir sem hitta í mark hjá ungu kynslóðinni.
View collection
Ginger
Engiferlínan okkar fyrir hárið, hefur notið mikilla vinsælda í gegnum árin vegna róandi og nærandi áhrifa sinna á hársvörðinn. Línan inniheldur Community Fair Trade Ginger Root Essential Oil frá Madagaskar og dregur úr kláða, þurrki og flösumyndun og þar að auki er hún mild og góð svo hún er tilvalin fyrir alla, líka þá sem ekki þurfa að kljást við viðkvæman hársvörð. Hún hentar líka vel fyrir fíngert og viðkvæmt hár þar sem notkun hennar stuðlar að auknu heilbrigði hársvarðarins, sem svo leiðir til heilbrigðara og sterkara hárs. Fullkomið fjölskyldusjampó. ...Og nú hefur bæst við Ginger Scalp Serum, gelkenndur áburður sem hjálpar enn frekar, mýkir og eykur blóðflæði út í hársvörðinn.
View collectionGingerbread
View collectionGjafakassar og pokar
Varstu að kaupa gjöf, veldu fallegar gjafaumbúðir undir gjöfina þína
View collectionGlow Body & Lip Oils
Sumarleg glow-lína: varaolíur, glitrandi body mist, þurrolíur fyrir líkamann og brúnkudropar.
View collectionGlowing Cherry Blossom
Glowing Cherry Blossom ilmurinn er mildur, ferskur og léttsætur blómailmur með örlitlum viðartónum. Sumarlegur og fínlegur.
View collectionHandáburðir
Í amstri dagsins verða hendurnar oft berskjaldaðar gagnvart umhverfisáhrifum. Þá er mikilvægt að hugsa vel um hendurnar og næra húðina með góðum handáburði. Hjá okkur finnur þú mikið úrval handáburða fyrir allar húðgerðir.
View collection
Hemp
Hampolíulínan okkar hentar vel fyrir sérstaklega þurra húð. Hún eykur rakabirgðir húðarinnar og hefur fengið lof og meðmæli frá breskum húðlæknum. Ein mest selda varan okkar, Hemp handáburðurinn, veitir raka í allt að 24 klst. Línan inniheldur Community Fair Trade hampsolíu. - Vissir þú að hampplantan vinnur koltvísiring úr andrúmslofti fjórum sinnum hraðar en aðrar plöntur?
View collectionHrokkið hár og krullað hár
Þó að stundum komið það sér vel að hárið flækist léttilega, til dæmis þegar maður vill fá flotta túberingu, þá er það nú oft þannig að flækjur henta okkur ekki alveg. Helstu meðmælin sem við gefum þér ef þú vilt minnka flækjustigið er að nota Banana Truly Nourishing Shampoo og Conditioner og jafnvel, við og við Banana Truly Nourishing Hair Mask. Nýja Jamaikan Black Castor Oil línan hentar líka frábærlega til að dekra við krullað hár sem gjarnan flækist auðveldlega, og Grapeseed Serum er sniðugt þegar greitt er úr flækjum, það auðveldar verkið og gefur hárinu gljáa. Og ef þú elskar kókoshnetuilm þá mælum við líka með Coconut Oil Brilliantly Nourishing Pre-Shampoo Hair Oil Coconut Oil
Hárburstar og aukahlutir
Greiður og burstar fyrir allt hár, slétt og krullað, þykkt og fínlegt, sítt og stutt. Skoðaðu úrvalið hér fyrir neðan.
View collectionHármeðferðir
Mótaðu krullurnar, losaðu flækjurnar og nærðu þurrt og rafmagnað hár á auðveldan hátt með fjölbreyttum hárvörum frá okkur.
View collectionHárnæring
Veittu hárinu heilbrigt útlit með því að velja hárnæringu sem passar þér. Moringa hárnæringing hentar til dæmis þeim sem sækjast eftir auknum gljáa í hárið en fyrir þá sem hafa mjög þurrt og brothætt hár eigum við til Banana Nourishing Hair Mask sem er frábær til notkunar einu sinni í viku og nærir og mýkir hárið án þess að þyngja það.
View collection
Húð- og nuddolíur
Dekraðu við hörundið með náttúrulegum olíum sem næra líkama og hár.
View collection
Ilmir
Skoðaðu fjölbreytt úrval gjafa sem innihalda okkar vinsælu ilmvötn og baðvörur í stíl, eða veldu sjálf/ur innhald í fallegan gjafakassa eða gjafapoka.
View collectionIlmur fyrir h
View collectionIlmur fyrir hana
Ertu að leita þér að nýju ilmvatni? ...eða ertu kannski að ná þér í gamla góða ilminn þinn í hundraðasta skipti... hvort svo sem það er, þá ertu komin á réttan stað.
View collectionIlmur fyrir hann
Frísklegur, grænn, viðarkenndur eða hlýr og mjúkur... hvaða ilmtegund sem þú leitar að, þá ættirðu að geta fundið hina einu réttu hérna hjá okkur. Kíktu á úrvalið hér fyrir neðan.
View collectionJamaikan Black Castor Oil
Frábær hárlína fyrir krullað og liðað hár, þróuð í samvinnu við hóp fólks frá öllum heimshornum og með alls kyns krullað og hrokkið hár, fólki frá Brasilíu, Indónesíu, Suður-Afríku, Bretlandi og Bandaríkjunum, vegna þess að þú verður að hafa krullur til að skilja krullur!
View collectionJóladagatöl
Jóladagatölin frá The Body Shop eru komin. Veldu jóladagatalið með 24 dekurvörum eða Ultimate jóladagatalið með 25 vörum, þar á meðal vörum í fullri stærð.
View collectionJólagjafirnar
Hér finnurðu gagnlegar og fallegar gjafir sem gleðja og dekra við allt þitt besta fólk.
View collectionKistna
Kistna ilmurinn er frísklegur, bjartur og grænn jurtailmur sem minnir á vorið og inniheldur línan hár- og sturtusápu og Eau de Toilette.
View collectionLíflaus húð
Stundum getur húðin virkað mött, þreytuleg og líflaus og þá er um að gera að skoða, meðal annars, hvort þú sért að nota réttu húðvörurnar. Vitamin C og Oils of Life™ húðlínurnar eru þær línur sem við mælum með ef húðin þín þarf á hressingu að halda og þá er úr heilmörgu að velja.
View collectionMango
Vissirðu að á Indlandi er mangóávöxturinn ástartákn? Njóttu þessa frískandi ávaxtailms í Body Butteri, misti, líkamsskrúbbi eða varasalva. Þá er Mango sturtugelið okkar sápulaust og inniheldur ekta mangóolíu.
View collectionMatcha
View collectionMoringa
Dekraðu við húðina þína með vörum unnum úr blómum Moringatrésins. Prófaðu til dæmis sturtusápu, Body Butter, líkamsskrúbb eða handsápu, allt gætt mildum ilmi moringablómsins.
View collectionNæturkrem og næturmaskar
Leyfðu næturkremunum og olíunum okkar að vinna fyrir þig á meðan þú hvílist. Sérfræðingar mæla með átta stunda svefni á nóttu, notaðu þann tíma vel og veldu rétta kremið sem vinnur vel á meðan þú sefur.
View collectionOils of Life
Oils Of Life™ vörulínan inniheldur 3 dýrmætar fræolíur, kamillu-, kúmen- og rósaberjaolíu sem flýta fyrir endurnýjun húðarinnar ásamt því að vera húðstyrkjandi. Tilvalin lína fyrir þroskaða húð.
View collectionOlive
Veittu húðinni þinni rakaskot með því að nota vörur úr ólífulínunni okkar. Hún inniheldur lífræna ólífuolíu sem er einstaklega mýkjandi og rakagefandi auk þess að hafa mjög mildan, hlutlausan ilm sem hverfur fljótt.
View collectionOlíukenndur hársvörður
Mörg okkar höfum gengið í gegnum tímabil þar sem hársvörðurinn framleiðir of mikla olíu. Við þessu mælum við með Tea Tree Purifying & Balancing Shampoo og Tea Tree Purifying & Balancing Conditioner. Tea Tree olían í þessari hárlínu hjálpar hársverðinum að koma jafnvægi á olíuframleiðsluna og er ótrúlega áhrifarík og frískandi.
View collection
Olíukenndur hársvörður
Mörg okkar höfum gengið í gegnum tímabil þar sem hársvörðurinn framleiðir of mikla olíu. Við þessu mælum við með Tea Tree Purifying & Balancing Shampoo og Tea Tree Purifying & Balancing Conditioner. Tea Tree olían í þessari hárlínu hjálpar hársverðinum að koma jafnvægi á olíuframleiðsluna og er ótrúlega áhrifarík og frískandi.
View collection
Passion Fruit
View collection
Peppermint
Kælandi piparmintulínan frískar upp á fætur og kropp ásamt því að draga úr þrota, þreytuverkjum og fótapirringi. Skrúbbur sem mýkir og hreinsar, krem sem næra og sprey sem kælir og margir fullyrða að sé prýðis flugnafæla.
View collectionPerfume Oil
Perfume Oil er hreinasta form ilmsins sem um ræðir. Hann er dýpri, flóknari og þyngri en EDT og EDP og endist enn lengur.
View collectionPink Grapefruit
Pink Grapefruit línan er frábær í morgunsturtuna með sínum frískandi og endurnærandi ilmi. Sturtusápa, body lotion, Body Butter og skrúbbur eru meðal vinsælustu vörutegunda sem við bjóðum upp á þessari línu, en ef þú vilt fara alla leið eigum við líka til body mist og handáburð í þessum hressandi ilmi. Skoðaðu úrvalið hér fyrir neðan.
View collectionRakstur og herravörur
The Body Shop hefur þróað sérstaka línu sem er hönnuð með húð karlmanna í huga.
Andlitssápur, raksápur og krem sem hreinsa, vernda og næra viðkvæma húð andlitsins, fyrir og eftir rakstur.
View collectionRecipes of Nature
Fáðu heilbrigðari húð með andlitsmöskum innblásnum af náttúrunni. Alvöru húðdekur heima. Hjá okkur færðu allt frá djúphreinsimöskum yfir í nærandi rakamaska. Maskarnir eru framleiddir án parabena, paraffinvax, silikona og steinefnaolíu(vaselíns) og þeir eru allir vegan.
View collectionRútína – Andlitsvatn
View collectionRútína – Aukalega
View collectionRútína – Hreinsun
View collectionRútína – Meðferð
View collectionRútína – Raki
View collectionSatsuma
Satsumalínan okkar hefur einkar frísklegan ilm af mandarínum og hentar því vel í morgunsturtuna eða þegar þörf er á sumarlegu orkuskoti.
View collectionSeaweed
Seaweed línan er hönnuð fyrir þau sem eru með blandaða húð, hjálpar húðinni að ná réttu jafnvægi í olíuframleiðslu og gefur henni matta áferð. Notaðu olíu- og sápulausa Seaweed Deep Cleansing Gel Wash til að losa húðina við óhreinindi og svo geldagkremið til að gefa henni raka og næringu.
View collectionShea
Sheasmjörið okkar er löngum þekkt fyrir hin nærandi áhrif sín á húðina og dásamlegan ilminn. Við bjóðum upp á fjölbreytta vörulínu undir merkjum Shea hnetunnar, til dæmis sturtusápu, handáburð, líkamsskrúbb og Body Butter. Þá er einnig í boði Body Mist enda ilmurinn vinsæll og góður. Þá var Shea smjör fyrsta Community Trade innhaldsefnið sem The Body Shop verslaði með og hófst samstarf í Ghana við Tungteiya Women’s Shea Butter Association árið 1994 og stendur enn.
View collectionSjampó
Alveg eins og með andlitskrem, þá er gríðarlega mikilvægt að finna rétta sjampóið fyrir sitt hár. Er þitt hár kannski matt og líflaust? Þá passar Moringa Shine & Protection Shampoo vel fyrir þig. Ertu kannski að leita að sjampói fyrir þurrt og brothætt hár? Þá ættirðu að prófa Banana Truly Nourishing Shampoo. Síðast en ekki síst, þá mælum við með Ginger Anti-Dandruff Shampoo fyrir þá sem hafa þurran eða viðkvæman hársvörð, það róar og mýkir hársvörðinn en er um leið frábært sjampó fyrir alla fjölskylduna.
View collectionSkemmt hár og slitið hár
Ef hárið er mjög þurrt og brothætt þar af gefa því extra mikið af næringu og mýkt til að hjálpa því að jafna sig. Prófaðu 100% Natural Shea Butter og lofaðu því að vinna yfir nótt ef ástandið er mjög slæmt, eða Shea Butter línuna ef þú vilt léttari en þó áhrifaríka meðferð.
View collectionSleep
Sleep línan hjálpar þér að slaka á og róa hugann á meðan hún nærir og mýkir húðina. Hún er dásamleg fyrir svefninn þar sem lavender ilmurinn stuðlar að betri svefni. Inniheldur lavender ilmkjarnaolíu frá Haute Provence í Frakklandi og vetiver ilmkjarnaolíu frá Madagaskar.
View collectionSpa of the World™
Njóttu þess að fara í spa heima með framandi dekurhúðvörum innblásnum af aldagömlum hefðum. Húðin verður silkimjúk og vel nærð. Finndu þína húðrútínu með sápu, skrúbbi, kremi og olíu úr Spa of the World™ línunni okkar.
View collectionStrawberry
Jarðarberjalínan er alltaf jafn vinsæl hjá okkur enda ilmurinn einstaklega ferskur og góður. Þessi lína er risastór hjá okkur og innheldur nánast allt sem hugurinn girnist, sturtusápu, Body Butter, Body Mist, handáburð og varasalva og margt fleira, og hentar öllum aldurshópum.
Skoðaðu úrvalið hér fyrir neðan.
View collectionSturtusápur
Njóttu þess að fara í sturtu með sápufríu sturtugeli sem þurrkar ekki húðina. Fjöldi ilma fyrir alla aldurshópa, konur og karla. Til að fá sem mest út úr vörunni er gott að nota fylgihluti eins og sturtuhanska, baðlilju eða bursta.
View collection
Sturtusápur
View collectionSvitalyktareyðir
Það er ekkert mál að láta ferskleikann haldast allan daginn því við eigum úrval svitalyktareyða fyrir alla.
View collectionSweet On You
Dásamleg, fersk, sæt og spennandi ilmsprey fyrir líkamann... eitt fyrir þig, annað fyrir frænku og svo enn annað fyrir stóru systur.
View collectionSápustykki
Hvort sem þú velur frískandi ilminn af Pink Grapefruit sápunni okkar eða mjúkan og léttsætan ilm Shea sápunnar, geturðu verið viss um að húðin verður tandurhrein, mjúk og fersk á augabragði. Svo eru þau svo mild, sápustykkin okkar að þau má nota á andlitið.
View collectionTea Tree
Áttu það til að fá bólur og fílapensla og finnst húðin þín of fiturík? Þá mælum við með því að þú prófir Tea Tree línuna okkar en hún hefur verið að reynast mörgum í sömu stöðu mjög vel. Línan er nú með viðbættri salisylic sýru sem er algjört dúndur á bólur en fer húðina sjálfa mjúkum höndum. Sýran leysir upp efsta lag húðarinnar, losar burtu dauðar húðfrumur og óhreinindi svo svitaholurnar stíflist síður og bólur myndist því síður, svo er hún bólgueyðandi og jafnar roða í húð. Þetta áhrifaríka innihaldsefni er nú í öllum vörum línunnar nema litlu olíuflöskunum, en þær innihalda 15% hreina tea tree olíu. Fjölbreytileikinn er mikill í þessari línu, við bjóðum upp á hreinsigel, froðu og toner, krem og maska, allt eftir þörfum hvers og eins. Kíktu á úrvalið hér fyrir neðan og finndu Tea Tree vörur sem henta þér.
View collectionTender Tonka
Sæt og frískleg ný vanillulína blönduð tonkabaunum. Fæst sem silkimjúkt krem fyrir líkamann, Fragrance Mist og Edt.
View collectionTilboðsverð
Hér geturðu skoðað vörur sem eru á sérstöku tilboðsverði. Gríptu tækifærið og gerðu enn betri kaup.
View collection
Undir 6.000 kr.
Hér finnurðu fallegar tilbúnar gjafir sem kosta undir 6.000.- krónum.
View collection
Varalitir
Leitin að hinum fullkomna varalit stendur allaf yfir. Við bjóðum frábært úrval fallegra litbrigða í mjúkum og nærandi varalitum, og erum sannfærð um að þú finnir rétta tóninn hjá okkur.
View collection
Varir
Það er gott að passa upp á að varirnar þorni ekki í kulda og trekki. Hjá okkur fæst fjölbreytt úrval af varasölvum og áburðum sem vernda og næra viðkvæmar varir. Lip Care Stick varasalvarnir eru laufléttir en nærandi varasalvar með örlitlum gjáa en Lip Butter línan inniheldur Community Fair Trade Shea butter og vinnur vel á varaþurrki. Svo má ekki gleyma hinum sívinsæla Hemp varasalva sem hefur bjargað mörgum sem þjást af miklum varaþurrki og er tilvalið að hafa með í útivistinni.
View collectionVetrar- og jólabaðlínur
Í gegnum árin hefur The Body Shop alltaf komið með skemmtilegar nýjar baðvörulínur sem henta sérstaklega vel hverri árstíð og nú eru jóla/vetrarbaðlínurnar komnar í verslanir. Í ár eru þrjár dásamlegar línur í boði og hægt að velja á milli sturtusápu, krema fyrir hendur og líkama og tveggja body mista. - Cranberry Crush ilmurinn er samsettur úr blöndu af trönuberjum, blóðappelsínum, engifer og mintu ásamt örlítilli vanillu og elderflower, virkilega ferskur og fínlegur ilmur. - Sugarplum Passion er bjartur og frísklegur ilmur sem býr þó líka yfir mýkt enda er hann samsettur úr sætum plómum, hindberjum og greipaldin, ásamt amber, kasmírviði og magnólíublómum. - Caramel Cuddle er yndislegur sætur ilmur af heslihnetukaramellu, vanillu og tonkabaun, blandað fersku bergamot og fresíum.
View collection
Vitamin C
Bættu smá C vítamíni í lífið. Þessi magnaða vörulína frískar upp á þreytulega húð og færir henni aukinn ljóma. Innan þessarar línu finnur þú andlitshreinsa og tvenns konar andlitskrem, augnkrem serum og fleira. Frískandi sítrusilmurinn hressir svo huga og sál, og með því að nota saman serumið og Intense dagkremið geturðu aukið ljóma húðarinnar um 30%.
View collectionVitamin E
Frá árinu 1977 hefur E vítamín línan okkar verið ein sú vinsælasta í verslunum okkar. E vítamín er andoxunarefni sem verndar húðina gegn niðurbroti sem verður af völdum umhverfisáhrifa eins og mengunar, reykinga og sólargeisla. Vinsæla E vítamín rakakremið okkar og olían henta öllum húðgerðum og vernda húðina gegn ótímabærri öldrun en þær eru langt því frá einu vörutegundirnar innan línunnar sem við bjóðum upp á. Skoðaðu úrvalið hér fyrir neðan.
View collection
Viðkvæm húð
Aloe andlitsvörulínan er án viðbættra rotvarnarefna, ilmefna, litarefna og alkóhóls. Þess vegna hentar hún sérstaklega vel fyrir viðkvæma og ofnæmisgjarna húð í andliti. Almond línan er hins vegar frábær baðlína fyrir þá sem eru með viðkvæma húð, möndluolían sefar og róar viðkvæma, pirrað húð líkamans.
View collectionWhite Musk
Okkar vinsælasti ilmur frá upphafi. Inniheldur Cruelty Free Musk, rósailm, jasmínu, amber og við. Til að byggja upp ilm sem endist lengur mælum við með því að nota sturtusápu, húðnæringu, ilmolíu og að lokum body mist.
View collection
White Tea and Elderflower
View collectionÚtsala 2026
View collectionÞurr húð
Við eigum til fjölmargar vörutegundir fyrir þá sem glíma við þurrk í húð. Skoðaðu vörulista hér fyrir neðan en við mælum með Vitamin E Intence Moisture Cream, Edelweiss Intense Moisture Cream eða jafnvel Hemp Heavy Duty Face Protector fyrir mjög þurra húð í andliti, þá eigum við ýmislegt sniðugt að setja í baðið ef húð líkamans er þurr, svo ekki sé minnst á krem fyrir kroppinn og hendurnar. Kíktu á úrvalið.
View collectionÞurrar hendur og neglur
Í amstri dagsins verða hendurnar oft berskjaldaðar gagnvart umhverfisáhrifum. Þá er mikilvægt að hugsa vel um hendurnar og næra húðina með góðum handáburði. Þegar komið er í óefni mælum við með að þú veljir þér extra góðan og næringarríkan handáburð eins og td Hemp Hand Protector, berir hann rausnarlega á hendur og naglabönd fyrir svefninn, setjir svo upp bómullarhanska og leyfir kreminu svo að vinna yfir nótt.
View collection
Þurrt hár og hársvörður
Þegar hársvörðurinn er þurr og pirraður, verðum við gjarnan fúl og pirruð og það gengur engan veginn. En sem betur fer er til frábær hárlína við þessum smákvilla, nefnilega Ginger hárvörulínan. Ginger Anti-Dandruff Shampoo og hárnæring eru vörur sem meðhöndla þurran hársvörð á mildan hátt og henta því allri fjölskyldunni. Prófaðu líka Ginger Scalp Serum ef þú vilt gera extra vel við þig. Ef hárið sjálft er þurrt og skemmt er svo Shea hárlínan frábær lausn.
View collection